Úrval Útsýn

Ferða­bæklingur Úrvals Útsýnar 2026–2027

Veldu flokk

Aðventu­ferðir

Jóla­stemning um alla Evrópu

Aðventuferðir

Áfanga­staðir 2026

Veldu ferð fyrir neðan eða skrollaðu niður til að fletta gegnum allar ferðir.

Aðventu­sigling um Rín

Frank­furt, Speyer, Strass­borg og Mainz

27. nóvember – 2. desember

Fjórir jólamarkaðir á sex dögum. Siglt á milli þeirra um Main og Rín um borð í MS Viva Tiara.

Verð frá 284.900 kr.

Mikið innifalið

Flug með Icelandair, flugvallaskattar og allur akstur, ein nótt á Frankfurt Marriott og 4 nætur um borð í MS Viva Tiara, íslensk fararstjórn.

Aðventusigling um Rín

Jóla­ævintýri á Rin Frank­furt, Speyer, Stras­bourg, Mainz

Þessi einstaka 6 daga ferð sameinar það besta við evrópska aðventu: glæsilega jólamarkaði í fjórum sögufrægum borgum og afslappandi siglingu um árnar Main og Rín. Við hefjum ferðina í Frankfurt, þar sem jólaandinn ríkir, áður en við stígum um borð í glæsilegt skip Viva Cruises sem verður okkar fljótandi hótel. Á meðan skipið lýður um fegurstu ár Evrópu heimsækjum við Speyer, Strasbourg og Mainz, skoðum tignarlegar dómkirkjur og njótum sannrar jólagleði á heillandi mörkuðum. Þetta er ferð fyrir þau sem vilja njóta lúxus, menningar og ómótstæðilegrar stemningar í góðum félagsskap þegar aðventan er hvað fegurst.

 

Ingi­björg Lárusdóttir

farar­stjóri

Ingibjörg Lárusdóttir er farastjóri í þessari ferð. Ingibjörg er mikill matgæðingur og elskar anda jólanna. Ingibjörg hefur áður verið farastjóri í aðventuferðum okkar og einnig til Tælands og Grikklands. Lífskúnstner sem gaman er að vera í kringum.

 

Inni­falið í verði

  • Flug með Icelandair til Frankfurt (FI520/FI521), flugvallarskattar og allur akstur samkvæmt dagskrá
  • Sótt á flugvöll, ekið á hótel, frá hóteli til skips og frá skipi aftur á flugvöll
  • Gisting í eina nótt á hinu glæsilega Frankfurt Marriott Hotel og 4 nætur um borð í MS Viva Tiara í völdum klefa
  • Fullt fæði og „All Inclusive" um borð sem innifelur morgun-, hádegis- og kvöldverð ásamt léttu snarli yfir daginn
  • Allir drykkir innifaldir: sérvalið áfengi, óáfengir drykkir, hágæða kaffi og te
  • Mínibar/ískápur í klefa er áfylltur alla daga með bjór, gosi og vatni
  • High Tea einu sinni í ferðinni með kökum, samlokum og tei
  • Skemmtun eftir kvöldverð
  • Gæða snyrtivörur frá Rituals í klefa
  • Ókeypis þráðlaust net (Wi-Fi)
  • Þjórfé fyrir áhöfn
  • Íslensk fararstjórn sem fylgir hópnum alla leið

Hvað er ekki innifalið?

  • Valfrjálsar skoðunarferðir sem skipafélagið býður upp á
  • Heimsóknir á söfn eða aðra ferðamannastaði sem krefjast aðgöngumiða
  • Hádegisverður og kvöldverður á meðan dvalið er í Frankfurt fyrsta daginn
  • Ferðatryggingar og aðrar persónulegar tryggingar

Ferða­lýsing

Boðið er upp á tvær tegundir glæsilegra klefa um borð: Ruby-klefa á miðþilfari (Middle Deck) og Diamond-klefa á efra þilfari (Upper Deck).

Einstök aðventusigling með Úrval Útsýn og Viva Cruises. Upplifðu töfra aðventunnar í 6 daga ævintýraferð um hjarta Evrópu. Ferðin hefst 27. nóvember með flugi til Frankfurt, þar sem gist er eina nótt áður en siglingin hefst. Skipið leggur að í þremur heillandi borgum sem allar skarta sínum eigin jólamarkaði. Þetta er einstakt tækifæri til að heimsækja jólamarkaði í fjórum borgum í sömu ferðinni og sigla um tvær af helstu ám álfunnar, Main og Rín.

Á þessari ferð kynnumst við fjórum ólíkum en jafnframt heillandi borgum. Við gistum fyrstu nóttina á Frankfurt Marriott Hotel og skoðum einn elsta jólamarkað Þýskalands í hinu sögufræga Römerberg hverfi. Siglingin heldur svo áfram til Speyer, en dómkirkja borgarinnar er á heimsminjaskrá UNESCO.

Í Strasbourg mætist frönsk og þýsk menning í „Litlu Frakklandi" (Petite France), þar sem bindingshús og skreyttar götur skapa ómótstæðilega stemningu. Að lokum heimsækjum við Mainz, borg Gutenbergs, þar sem rómantískir markaðir prýða torgin við hlið tignarlegu dómkirkjunnar úr rauðum sandsteini. Hver viðkomustaður býður upp á sína einstöku jólatöfra og sögu.

Helstu áfanga­staðir og kaflar þessarar ferðar

Frank­furt – Jóla­borgin

Við hefjum ferðina í Frankfurt, þar sem jólaandinn ríkir. Í Frankfurt er heillandi jólamarkaður í Römerberg-hverfinu sem á sér sögu allt aftur til ársins 1393. Við gistum fyrstu nóttina á Frankfurt Marriott Hotel og njótum stemningarinnar í þessari fjármálaþungu borg.

Speyer – Dóm­kirkjan á heimsminja­skrá

Skipið leggur að bryggju í Speyer. Eftir morgunverð er hægt að ganga um gamla bæinn eða heimsækja einn notalegasta jólamarkað Þýskalands. Dómkirkja borgarinnar er á heimsminjaskrá UNESCO og er ein stærsta rómversk dómkirkja heims.

Stras­bourg – Höfuð­borg jóla­anna

Strasbourg er einstaklega gönguvæn borg þar sem frönsk og þýsk menning mætast á áhugaverðan hátt. Borgin státar af ríkri sögu og glæsilegu yfirbragði. Hún er staðsett í Alsace-héraði og er þekkt fyrir gotneska dómkirkju sína og hinu sögulega Petite France-hverfi, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.

Strasbourg er heimsfræg fyrir jólamarkaði sína og ljósadýrðin á kvöldin er einstök og kemur öllum í sannkallað jólaþap. Á hverju ári flykkjast nær tvær milljónir gesta til „höfuðborgar jólaanna" til að upplifa það besta sem aðventan hefur upp á að bjóða. Yfir 300 sölubásar eru jafnan settir upp á torgum í Grande-Île hverfinu.

Frá 16. öld hafa jólamarkaðirnir umbreytt borginni í sannkallað undraland. Með yfir fjögurra alda hefð er markaðurinn sá elsti í Frakklandi og meðal þeirra elstu í Evrópu. Markaðurinn „Christkindelsmärik" á Broglie-torgi, við rætur óperuhússins, er sérstaklega heillandi.

Matarúrvalið á mörkuðunum er fjölbreytt og stemningin er talin ein sú líflegasta sem völ er á. Hátíðarandinn svífur yfir fallega skreyttum húsum og í miðri ljósadýrðinni rís dómkirkjan í allri sinni dýrð og skapar ógleymanlega stemningu.

Mainz – Borg Guten­bergs

Mainz er fræg fyrir falleg miðaldartorg sín, gömul timburhús og hinn sérstaka gosbrunn úr rauðum sandsteini sem prýðir miðborgina. Þessi einkennandi rauði steinn er áberandi í mörgum af glæsilegustu byggingum borgarinnar. Í Mainz er einnig að finna hið fræga Gutenberg-safn, helgað sögu prentlistarinnar. Borgin skartar einstökum jólamarkaði sem staðsettur er við hlið dómkirkjunnar.

Valin hótel

Frank­furt Marri­ott Hotel 5★ – Glæsi­legt hótel í Frank­furt

Frankfurt Marriott Hotel er virkilega notalegt og vandað 5 stjörnu hótel sem staðsett er í hjarta Frankfurt. Hótelið býður upp á frábært morgunverðarhlaðborð sem gefur góðan kraft inn í daginn. Herbergin eru glæsileg og klassískt innréttuð með áherslu á þægindi, góð rúm og ríka hljóðeinangrun sem tryggir fullkomna hvíld.

MS Viva Tiara 4★ – Glæsi­legt skemmti­ferða­skip á Main og Rín

MS Viva Tiara er virkilega glæsilegt og vandað 4 stjörnu skemmtiferðaskip sem siglir á ám Main og Rín. Um borð býðst fullt fæði og „All Inclusive" sem innifelur morgun-, hádegis- og kvöldverð ásamt léttu snarli yfir daginn. Allir drykkir eru innifaldir: sérvalið áfengi, óáfengir drykkir, hágeða kaffi og te. Mínibar/ískápur í klefa er áfylltur alla daga með bjór, gosi og vatni. Herbergin eru glæsileg og vel innréttuð með áherslu á þægindi. Gæða snyrtivörur frá Rituals í klefa og ókeypis þráðlaust net (Wi-Fi).

Dag­skrá

Dagur 1, 27. nóvember 2026 — Koma til Frank­furt

Flogið er með Icelandair (FI520) kl. 07:20 og lent í Frankfurt kl. 12:05. Rúta bíður okkar á flugvellinum og flytur hópinn á hótel. Það er tilvalið að nota daginn til að skoða borgina og njóta jólaandans. Í Frankfurt er heillandi jólamarkaður í Römerberg-hverfinu sem á sér sögu allt aftur til ársins 1393.

Dagur 2, 28. nóvember 2026 — Stigið um borð

Rúta sækir hópinn á hótelið um hádegi og keyrir okkur að skipi Viva Cruises, MS Tiara. Skipið leggur úr höfn kl. 17:00 og við njótum okkar fyrsta kvöldverðar um borð á meðan við siglum af stað.

Dagur 3, 29. nóvember 2026 — Speyer

Skipið leggur að bryggju í Speyer kl. 07:30. Eftir morgunverð er hægt að ganga um gamla bæinn eða heimsækja einn notalegasta jólamarkað Þýskalands sem opnar kl. 11:00. Skipið siglir aftur kl. 14:00. Hádegis- og kvöldverður borinn fram um borð.

Dagur 4, 30. nóvember 2026 — Stras­bourg (Höfuð­borg jólaanna)

Skipið leggur að bryggju í Strasbourg kl. 02:00. Eftir morgunverð eða hádegisverð um borð gefst kostur á að ganga um þessa heillandi borg og skoða einn af elstu jólamörkuðum Evrópu. Kvöldverður er borinn fram í skipinu áður en haldið er úr höfn kl. 22:30.

Dagur 5, 1. desember 2026 — Mainz

Skipið leggur að bryggju í Mainz klukkan 12:00. Borgin er fræg fyrir falleg miðaldartorg sín, gömul timburhús og hinn sérstaka gosbrunn úr rauðum sandsteini sem prýðir miðborgina. Í Mainz er einnig að finna hið fræga Gutenberg-safn, helgað sögu prentlistarinnar. Borgin skartar einstökum jólamarkaði sem staðsettur er við hlið dómkirkjunnar. Eftir innihaldsríkan dag njótum við kvöldverðar um borð í skipinu. Skipið siglir af stað áleiðis til Frankfurt klukkan 01:30 (aðfaranótt 2. desember).

Dagur 6, 2. desember 2026 — Heim­ferð

Skipið leggur að höfn í Frankfurt kl. 07:00. Eftir morgunverð um borð flytur rúta hópinn út á flugvöll. Flogið er heim með Icelandair (FI521) kl. 13:05 og lent í Keflavík kl. 15:55 eftir ógleymanlega ferð.

Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net

Verð frá 284.900 kr.

Bóka  núna

Berlín

Jóla­markaðir, saga og menning

26.–30. nóvember

Jólamarkaðurinn við Gendarmenmarkt er sá glæsilegasti í borginni og langt frá því sá eini. Fjórar nætur af glöggi, kórsöng og piparkökuilmi.

Verð frá 139.900 kr.

Berlín

Berlín Jóla­markaðir, saga og menning

Berlín í nóvember er einstakur staður til að upplifa ósvikna aðventustemningu í einni líflegustu stórborg Evrópu. Þegar dregur nær jólum breytist borgin í sannkallaða jólaparadís þar sem sagan og nútíminn mætast undir tindrandi ljósadýrð. Þýskaland er þekkt fyrir sína ríku jólahefð og Berlín er þar engin undantekning, en borgin skartar fjölmörgum jólamörkuðum sem hver hefur sinn einstaka sjarma.

Hápunktur ferðarinnar er án efa heimsókn á hina glæsilegu jólamarkaði, eins og þann við Gendarmenmarkt, þar sem handverk, gæðamatun og ilmandi jólaglögg (Glühwein) skapa ógleymanlegt andrúmsloft. Það er dásamleg upplifun að ganga á milli skreyttra sölubása í sögulegu umhverfi, hlusta á kórana syngja jólasálma og finna ilminn af nýbökuðum piparkökum og ristuðum möndlum fylla loftið.

Auk jólagleðinnar býður Berlín upp á óþrjótandi möguleika fyrir þá sem vilja njóta menningar og sögu. Hægt er að virða fyrir sér hið tignarlega Brandenborgarhlið í vetrarbúningi, ganga meðfram leifum Berlínarmúrsins eða skoða dýrgripi mannkynssögunnar á Safnaeyjunni. Fyrir þá sem vilja nýta ferðina í jólagjafakaup er Berlín sönn verslunarmiðstöð, allt frá lúxusverslunum á Kurfürstendamm yfir í spennandi hönnunarvörur í litlum hliðargötum.

Matarmenningin í Berlín yljar líka á köldum nóvemberkvöldum, hvort sem þú velur notalegan þýskan bjórgralla eða alþjóðlega matargerð á heimsmælikvarða. Aðventuferð til Berlínar er fullkomin leið til að flýja skammdegið heima, hlaða batteríin og fyllast eftirvæntingu fyrir komandi jólahátíð í einu dásamlegasta umhverfi sem hægt er að hugsa sér.

Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net.

Verð frá 139.900 kr.

Bóka  núna

England

Winchester og Suður-England

27.–30. nóvember

Tómas Bolli Hafþórsson, búsettur í Windsor í níu ár, leiðir hópinn um Suður-England. Konungleg saga, Stonehenge í vetrarbirtu og jólamarkaður í Winchester.

Verð frá 239.900 kr.

Mikið innifalið

Flug með Icelandair, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 3 nætur, íslensk fararstjórn, rúta í skoðunarferðum, aðgangseyrir að Stonehenge og aðventukvöldverður.

England

Ógleyman­leg aðventu­ferð til Englands Jóla­markaðir, saga og verslun

Komdu með í sannkallaða ævintýra- og aðventuferð til Suður-Englands dagana 27. til 30. nóvember undir öruggri leiðsögn Tómasar Bolla Hafþórssonar. Í þessari ferð sameinum við konunglega sögu, dularfullar fornminjar, frábæra verslun og auðvitað ósvikinn enskan jólaanda.

 

Tómas Bolli Hafþórs­sonar

farar­stjóri

Tómas Bolli hefur verið búsettur í Englandi í yfir 17 ár, þar af síðustu 9 árin í sjálfum konungsbænum Windsor. Hann á að baki fjölbreyttan feril; lærði þjóninn á Grillinu á Hótel Sögu, er með menntun í hótelstjórnun og hefur starfað sem grafískur hönnuður og ljósmyndari til tveggja áratuga. Tómas er sannur lífskúnstner sem elskar að ferðast og njóta þess besta sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann hefur gríðarlega ástríðu fyrir Englandi og hlakkar til að deila staðarþekkingu sinni, sögunni og enskri menningu með hópnum í þessari dásamlegu aðventuferð.

 

Inni­falið í verði

  • Flug fram og til baka með Icelandair
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska og handfarangur
  • Gisting í 3 nætur
  • Íslensk fararstjórn
  • Akstur með rútu á öllum skoðunarferðum
  • Aðgangseyrir að Stonehenge
  • Skoðunarferð um Winchester með leiðsögn
  • Aðventukvöldverður

Hvað er ekki innifalið?

  • Máltíðir nema þær sem tilgreindar eru
  • Þjórfé
  • Persónuleg útgjöld og verslun
  • Tryggingar
  • Annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan

Ferða­lýsing

Þessi ferð sameinar konunglega sögu, dularfullar fornminjar, frábæra verslun og ósvikinn enskan jólaanda. Undir leiðsögn Tómasar Bolla, sem hefur búið í Englandi í 17 ár, fá þátttakendur einstakt tækifæri til að upplifa Suður-England á heillandi hátt.

Helstu áfanga­staðir og kaflar þessarar ferðar

Winchester

Winchester er söguborgin þar sem jólamarkaðurinn er einn sá allra besti í Evrópu. Hér er tilvalið að fá sér heitt glögg, skoða handverk og njóta töfrandi ljósadýrðarinnar.

Stonehenge

Á leiðinni til Winchester sködum við hinn heimsþekkta og dularfulla steinhring, eitt þekktasta fornminjar Bretlands.

Portsmouth

Hafnarborgin Portsmouth býður upp á frábært úrval verslana við sjávarsíðuna, sérstaklega í Gunwharf Quays. Tilvalið að versla jólagjafirnar og upplifa sanna breska menningu með pubbarölti.

Windsor

Konungsbærinn Windsor er glæsilegur bær með stórfenglegan kastala. Hér gefst kærkomið tækifæri til að njóta bæjarins, ganga frá síðustu jólainnkaupunum og drekka í sig jólaandann í þessum glæsilega og konunglega bæ.

Dag­skrá

DAGUR 1, FÖSTU­DAGUR, 27. NÓVEMBER 2026 — Stonehenge og jóla­markaðurinn í Winchester

Ferðin hefst snemma morguns en flogið er með Icelandair til London klukkan 07:35. Eftir lendingu tekur rúta á móti hópnum og hefst þá ferðin til söguborgarinnar Winchester. Á leiðinni stöppum við og skoðum hinn heimsþekkta og dularfulla steinhring, Stonehenge. Þegar við komum til Winchester um eftirmiðdaginn skellum við okkur beint í jólaandann á hinum víðfræga jólamarkaði borgarinnar, sem þykir einn sá allra besti í Evrópu. Þar er tilvalið að fá sér heitt glögg, skoða handverk og njóta töfrandi ljósadýrðarinnar.

DAGUR 2, LAUGAR­DAGUR, 28. NÓVEMBER 2026 — Leyndar­dómar Winchester og aðventu­kvöldverður

Eftir góðan morgunverð höldum við í fjögurra tíma og afar fróðlega skoðunarferð um borgina. Við munum meðal annars heimsækja hina stórbrotna Winchester-dómkirkju, sem er ein stærsta dómkirkja Evrópu, og skoða sögufrægu bygginguna The Great Hall – þar sem sjálft hringborð Arthúrs konungs hangir á vegg. Eftir vel heppnaða skoðunarferð er frjáls tími, en um kvöldið kemur hópurinn saman og nýtur glæsilegs og notalegs aðventukvöldverðar.

DAGUR 3, SUNNU­DAGUR, 29. NÓVEMBER 2026 — Verslun og pubbarölt í hafnar­borginni Portsmouth

Dagurinn hefst á morgunverði áður en við höldum til hafnarborgarinnar Portsmouth. Hér er tilvalið að nýta daginn í að versla jólagjafirnar, enda úrvalið frábært og mikið um góðar verslanir við sjávarsíðuna (eins og í Gunwharf Quays). Sumir munu ef til vill kjósa að hvíla lúin bein á milli verslana og skella sér í ljúffengan jólabrunch, eða upplifa sanna breska menningu með hressandi pubbarölti um bæinn.

DAGUR 4, MÁNU­DAGUR, 30. NÓVEMBER 2026 — Konung­legur jóla­andi í Windsor og heim­ferð

Eftir morgunverð fara töskurnar í rútuna og við höldum af stað í átt að Heathrow-flugvelli, en ferðalaginu er alls ekki lokið! Á leiðinni stoppum við í hinum yndislega bæ Windsor. Við byrjum á því að fara saman í skoðunarferð um hinn stórfenglega Windsor-kastala, sem er innifalin í ferðinni. Að henni lokinni verður frjáls tími til að njóta bæjarins, ganga frá síðustu jólainnkaupunum og drekka í sig jólaandann í þessum glæsilega og konunglega bæ. Að því loknu höldum við á flugvöllinn. Flogið er heim með Icelandair klukkan 20:35 og lendum við í Keflavík rétt fyrir miðnætti eftir frábæra ferð.

Flug­upp­lýsingar (Icelandair)

  • Föstudagur 27. nóv: Brottför frá Keflavík kl. 07:35
  • Mánudagur 30. nóv: Brottför frá London (LHR) kl. 20:35. Lent í Keflavík fyrir miðnætti

Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net

Verð frá 239.900 kr.

Bóka  núna

Köben

Jóla­ljós, saga og sam­vera

4.–7. desember

Kristín A. Árnadóttir, fyrrverandi sendiherra, leiðir hópinn um söguslóðir borgarinnar. Tívolí í jólabúningi, markaðurinn á Kongens Nytorv og gisting í vöruhúsi frá 1869.

Verð frá 229.900 kr.

Köben

Aðventa í Kaupmanna­höfn: Jóla­ljós, saga og sam­vera Kaupmanna­höfn, Danmörk

Upplifðu jólaborgina Kaupmannahöfn í allri sinni dýrð þar sem ljósadýrð, jólamarkaðir og ristaðar möndlur skapa ógleymanlega stemningu. Í þessari ferð leiðir Kristín A. Árnadóttir, fyrrverandi sendiherra, hópinn um söguslóðir borgarinnar.

Kristín A. Árnadóttir

Kristín A. Árna­dóttir

farar­stjóri

Hvað er betra en að hefja aðventuna á því að skella sér í helgarferð til Kaupmannahafnar, heimsækja hið einstaka Tívolí í jólabúning og kaupa nokkrar jólagjafir á jólamarkaðnum á Kongens Nytorv? Jólaljós og ótal markaðir mæta gestum á hverju götuhorni og enginn verður svikinn af þessari heimsókn þar sem angandi ilmur af greni og jólaglöggi skapa sannkallaða aðventustemningu.

Ferða­lýsing

Gist er á hinu sjarmerandi 4 stjörnu hóteli Copenhagen Strand sem er staðsett í hjarta borgarinnar í sögulegu vöruhúsi frá 1869. Hótelið er þekkt fyrir hlýlegt andrúmsloft og klassíska norræna hönnun, steinsnar frá iðandi mannlífi Nýhafnar.

Dag­skrá

Dagur 1, föstu­dagur, 4. desember 2026 — Koma til Kaupmanna­hafnar

Flogið er með Icelandair til Kaupmannahafnar kl 07:35 og lent 11:45. Rúta keyrir hópinn á hótel Copenhagen Strand. Frjáls dagur til að slaka á, fara í gönguferð eða skella sér í jóla-Tívolí. Hópurinn borðar saman 3ja rétta kvöldverð á sérvöldum stað.

Dagur 2, laugar­dagur, 5. desember 2026 — Sögu­ganga og sigling

Eftir morgunverð förum við í 2,5 tíma sögugöngu um Kaupmannahöfn í fylgd fararstjóra. Eftir gönguna siglum við um síki borgarinnar. Frjáls tími fram að kvöldmat en þá borðar hópurinn saman 3ja rétta kvöldverð.

Dagur 3, sunnu­dagur, 6. desember 2026 — Frjáls dagur eða Esrum-klaustrið

Frjáls dagur í borginni eða valfrjáls skoðunarferð á jólamarkaðinn í Esrum-klaustri á Norður-Sjálandi. Þar iðar allt af mannlífi, handverki og jólaljósum í sögufrægu umhverfi – sannkölluð veisla fyrir augað.

Dagur 4, mánu­dagur, 7. desember 2026 — Heim­ferð

Eftir morgunverð flytur rúta hópinn á flugvöllinn. Flogið er með Icelandair (FI205) kl. 12:55 og lent í Keflavík kl. 15:10 að staðartíma.

Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net.

Verð frá 229.900 kr.

Bóka  núna

Prag

Jóla­markaðir og Karls­brúin

4.–7. desember

Jólamarkaðirnir á Gamla torginu og Václavstorgi loga fram á kvöld. Gist á fjögurra stjörnu hóteli í hjarta borgarinnar, beint flug með Icelandair.

Verð frá 159.900 kr.

Mikið innifalið

Beint flug með Icelandair, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 3 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði, íslensk fararstjórn.

Prag

Aðventu­gleði í Prag Jóla­markaðir, saga og tíma­laus tæfing

Stígðu inn í vetrarævintýri og uppgötvaðu tímalausa töfra Prag á aðventunni. Röltu um steinlagðar götur borgarinnar sem skreyttar eru glitrandi ljósum, stórkostlegri gotneskri byggingarlist og upplifðu hátíðlegri stemningu á hinum frægu jólamörkuðum á Gamla torginu og Václavstorgi. Njóttu hefðbundinna tékkneskra kræsinga, sötraðu ylvolga jólaglögg og hlustaðu á töfrandi jólatónleika. Hvort sem þú ert að versla handgerðar jólagjafir eða njóta hátíðarstemningarinnar, þá er aðventan í Prag ógleymanleg ævintýraferð rétt fyrir jól.

 

Marta Bartoskova

farar­stjóri

Marta hefur áratugalanga og víðtæka reynslu af leiðsögn og fararstjórn. Hún hóf störf sem leiðsögumaður í Prag snemma á tíunda áratugnum og byggði þar upp sterkan grunn í móttöku og þjónustu við ferðamenn. Eftir flutning til Íslands lauk hún námi frá Leiðsöguskólanum í Kópavogi með réttindi á ensku og norsku. Hún starfaði sem leiðsögumaður á Íslandi í fjögur sumur.

Marta hefur starfað lengi sem leiðsögumaður og fararstjóri, aðallega í Prag en einnig í öðrum vinsælum áfangastöðum á borð við Króatíu, Ítalíu og Austurríki.

Marta er með B.Phil.-gráðu í norrænum bókmenntum, meistaragráðu í enskum og norskum fræðum og doktorspróf (Ph.D.) í íslenskum bókmenntum.

 

Inni­falið í verði

  • Beint flug fram og til baka
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska og handfarangur
  • 3 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði
  • Íslensk fararstjórn
  • Flug með Icelandair

Hvað er ekki innifalið?

  • Skoðunarferðir
  • Flugvallarakstur (valkvæður)
  • Máltíðir aðrar en morgunverður
  • City tax
  • Annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan

Ferða­lýsing

Prag eða Praha á tékknesku, borg hinna 100 turna, hefur oft verið talin falinn gimsteinn þar sem leiðir lög frekar til stóru borganna í vestur Evrópu. Eftir fall austantjaldsins jókst ásókn í fegurðina sem Prag hefur að geyma og nú er hún með blómlegustu og vinsælustu ferðamannaborgum Evrópu. Borgin á sina miklu sögu en frá árinu 870 hafa íbúar upplifað innrásir og yfirtöku hinna ýmsu valdhafa ásamt flóðum og borgarbruna og því þekkt fyrir úthald og varðveislu sem gefur borginni vissan karakter og gerir hana sjarmerandi og spennandi.

Helstu áfanga­staðir og kaflar þessarar ferðar

  • Vinsælir staðir að heimsækja eru án efa Stjörnuúrið, einnig kallað Postulaklukka staðsett við ráðhúsið, og gamla borgartorgið. Hún er ævagömul, byggð 1410 og hringir á heila tímunum frá kl. 9.-23 og sýnir þá postulana 12 í gluggum klukkunnar.
  • Karlsbrúin er einkenni borgarinnar Prag. Hún er elsta nústandandi brú yfir Moldá fljótið og ein elsta steinbrú Evrópu. Brúin tengir miðborgina við kastalahæðina og eru turnar með hliðum við sinnhvort endann.
  • Kastalinn í Prag (Pražský hrad) er stærsta kastalasamstæða heims. Hann var áður aðsetur konunga Bæheims og nokkurra keisara þýska ríkisins. Í dag er hann opinbert aðsetur forseta landsins. Í kastalanum eru tékknesku krúnudjásnin geymd.
  • Vítusarkirkjan er hluti af kastalasamstæðunni í Prag. Hún er dómkirkja og stærsta kirkja landsins. Í henni voru konungar Bæheims krýndir.
  • Vyšehrad-kastalinn er eldri af tveimur kastölum í Prag, en elsti hluti hans er frá 10. öld. Á lóðinni er kirkja Péturs og Páls.
  • Teynkirkjan (einnig kölluð Frúarkirkjan) stendur við torg í gömlu borginni. Hún er frá 14. öld og skartar tveimur misháum turnum, kallaðir Adam og Eva. Í kirkjunni er elsta pípuorgel Tékklands. Þar hvílir einnig danski stjörnufræðingurinn Tycho Brahe.
  • Gyðingahverfið með sín hlykkjóttu stræti, þekkt úr bókum Franz Kafka, hefur laðað til sín margan ferðamanninn og vert er að skoða. Þar eru samkunduhús (High synagogue og fleiri), söfn (Jewish Museum) og Gamli-gyðingakirkjugarðurinn.
  • Svona mætti lengi telja en borgin er einnig þekkt fyrir arkitektúr frá hinum ýmsu tímabilum, gotnesk, endurreisn, barokk, rómansk, art nouveau og funkis svo eitthvað sé nefnt.

Gisting í boði

Art Nouveau hótel í hjarta Prag

Art Nouveau arkitektúr, fallegar innrættingar og frábær þjónusta gerir þetta hótel eftirsóknarvert að heimsækja þegar farið er til Prag, hótelið er ein af elstu Art Nouveau byggingum í borginni, staðsett í hjarta borgarinna og nálægt gamla bænum (old town) og hægt að fara fótgangandi að skoða t.d. Jewish Quarter (gyðinga hverfið) Astronimical Clock/stjörnuklukkuna og Lýðveldistorgið. Eftir skemmtilegan göngutúr er upplagt að fá sér léttan huggulegan málsverð á Bar & Bistró á hótelinu, veitingarstaðurinn er býður upp á tékkneska og alþjóðlega matargerð.

Herbergin eru nútímaleg og bjóða upp á há-hraðanet, gervihnattasjónvarp, öryggishólf, minibar, loftkælingu, góðar dýnur og dúnsængur.

Vellíðunaraðstaða er á hótelinu þar sem hægt er að fara í sána eða panta sér nudd. Líkamsræktaraðstaða er á hótelinu.

Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net

Verð frá 159.900 kr.

Bóka  núna

Hafa sam­band

Úrval Útsýn, Hlíðasmára 6, 201 Kópavogi
Skrifstofa opin 12 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)
Þjónustu- og söluver +354 585 4000
Opið 9 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)

  • Sólarferðir info@uu.is
  • Viðskiptaferðir flug@uu.is
  • Hópadeild hopar@uu.is
  • Golfdeild golf@uu.is