Veldu flokk
Veldu ferð fyrir neðan eða skrollaðu niður til að fletta gegnum allar ferðir.
8.–12. október
Díókletíanusarhöllin stendur enn í hjarta borgarinnar, sautján öldum eftir að hún var reist. Fjórar nætur við Adríahafið meðan haustsólin heldur velli.
Verð frá 119.900 kr.
Upplifðu töfra Adríahafsins í Dalmatíu, þar sem sögulegir bæir, tærir strendur og lífleg eyjar bíða þín. Hvort sem þú leitar að menningu, slökun eða ævintýrum finnur þú það hér.
Split er hjarta Dalmatíu, byggð í kringum hina glæsilegu Díókletíanusarhöll. Hér mætast forn rómversk saga og nútímalegur lúxus í fullkomnu samræmi. Borgin býður upp á iðandi mannlíf, hágeða verslanir og dýnamíska stemningu á Rívan-strandgöngunni, þar sem útsýnið yfir höfnina er óviðjafnanlegt.
Podstrana er eftirsótt svæði rétt við Split, þekkt fyrir úrvals gistingu og nútímaleg hótel sem bjóða upp á meira næði. Þetta er kjörinn staður fyrir þá sem vilja slaka á við tærar strendur og njóta hágeða heilsulinda, en hafa jafnframt greiðan aðgang að lífinu í miðborginni.
Þessi hluti strandlengjunnar er rómaður fyrir fegurð sína. Brela er þekkt fyrir Punta Rata, eina af fegurstu ströndum heims. Tučepi býður upp á eina lengstu strandgöngu svæðisins og fjölskylduvænt umhverfi, á meðan Podgora heillar með sögulegum sjarma, fallegri höfn og afslöppuðum takti sem einkennir þetta forna fiskimannasamfélag.
Eyjarnar bjóða upp á ólíka upplifun. Brač er paradís fyrir náttúruunnendur og vatnaíþróttafólk, þar sem hin hvíta Zlatni Rat strönd skartar sínu fegursta. Hvar er hins vegar sólríkasta eyjan, þekkt fyrir glæsileika, sögulegan sjarma og eitt eftirsóttasta næturlíf Adríahafsins.
Svæðið í kringum Split og Makarska er heimsþekkt fyrir kristaltært og djúpblátt hafið. Hér finnur þú tærustu vötn Evrópu, þar sem sýnileikinn neðansjávar er einstakur. Hvort sem þú nýtur kyrrðarinnar í leyndum víkum eða ferðast á milli eyja, þá er Adríahafið upplifun sem enginn gleymir.
Matarmenning Dalmatíu leggur áherslu á ferskt hráefni úr hafinu, úrvals ólífuolíu og staðbundin gæðavín. Við mælum með að prófa hefðbundna rétti á "konoba" – fjölskyldureknum veitingastöðum þar sem gæði og uppruni eru í fyrirrúmi, sem tryggir ekta bragð af Miðjarðarhafinu.
Vinsamlegast athugið að ekki er fararstjóri á okkar vegum í Split og því mikilvægt að kynna sér samgöngur fyrir brottför:
ATH: Ferjur geta selst upp á vinsælustu ferðadögum yfir sumartímann. Við mælum eindregið með að bóka miða tímanlega á www.ferryhopper.com til að tryggja ykkur pláss (athugið sveigjanleika í bókunum).
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 119.900 kr.
15.–19. október
Gamli bærinn við Douro er á heimsminjaskrá UNESCO. Fjórar nætur meðal púrtvínskjallara og brattra gatna niður að ánni.
Verð frá 145.900 kr.
Beint flug fram og til baka, gisting á góðu hóteli og ríkulegur morgunverður.
Porto er um þessar mundir ein vinsælasta borg Evrópu til að heimsækja – og það af mjög góðri ástæðu. Töfrandi gamli bærinn við hina fögru á Douro var settur á heimsminjaskrá UNESCO árið 1996. Borgin er heimsfræg fyrir Púrtvínið sitt og þykir einn af fegurstu áfangastöðum Portúgals. Innifalið í þessari dásamlegu fjögurra nátta ferð er beint flug, gisting á góðu hóteli og ríkulegur morgunverður. Þetta er fullkomið tækifæri til að slaka á, njóta litríkra húsa og upplifa allt það besta sem þessi sögulega borg hefur upp á að bjóða í októbermánuði.
Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari, ef hún er ekki að leiða hópa um háland Íslands er hún á ferð um framandi og fjarlæg horn heimsins eða á ljúfum siglingum á skemmtiferðaskipum um Miðjarðarhaf, yfir Atlandshafið eða um Karíbahaf. Gréta er ljósmyndari að mennt og hefur linsan dregið hana víða t.d. um Lombok í Indónesíu, um fáfarna staði í Mexíkó, víða um Indókína og Afríku.
Porto er ein elsta og fallegasta borg Evrópu, þekkt fyrir brattar brekkur, litrík hús og sögulega brýr. Borgin, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, býður upp á einstaka blöndu af fornum sjarma og nútímalegri sköpunarkrafti. Hér mætast ilmurinn af fersku sjávarfangi, hljómarnir í Fado-tónlistinni og stórkostlegt útsýni yfir Douro-fljótið í ógleymanlegri upplifun.
Gamli miðbærinn, Ribeira, er hjarta borgarinnar. Þar er dásamlegt að rölta um þröng stræti, virða fyrir sér flísalögðu húshliðarnar (azulejos) og njóta mannlífsins á kaffihúsunum við fljótið. Ekki má láta heimsókn í Lello-bókaverslunina framhjá sér fara, en hún er sögð hafa veitt J.K. Rowling innblástur að Harry Potter, eða skoða hina glæsilegu São Bento lestarstöð.
Porto er höfuðborg portvínsins og heimsókn í vínhúsin í Vila Nova de Gaia er algjör nauðsyn. Þar geta gestir fræðst um sögu framleiðslunnar og smakkað á eðalvínum. Matarmenningin í borginni er framúrskarandi; allt frá hinni hefðbundnu Francesinha samloku yfir í ferskan fisk af hæsta gæðaflokki.
Hvort sem þú vilt njóta siglingar um ána, versla í glæsilegum búðum við Rua Santa Catarina eða virða fyrir þér sólsetrið frá hinu tignarlega Dom Luís I brúnnni, þá mun Porto grípa þig. Þetta er borg sem er fullkomin fyrir rómantíska helgi, menningarferð eða skemmtilega borgarferð með vinum.
Ekki má heldur gleyma drykknum ljúffenga sem ber nafn borgarinnar: Portvín! Golfsettið má gjarnan fylgja með því golfvellirnir eru opnir allt árið.
Það er ekki langt að norðurlandamærunum þar sem við tekur Galisíu hérað Spánar sem geymir eina af mikilvægustu borgum kaþólskunnar, Santiago de Compostel, en við glæsilega dómkirkju borgarinnar lýkur pílagrímagöngu eftir Jakobsstígnum.
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 145.900 kr.
22.–26. október
Catania liggur við rætur Etnu og barokkið setur svip á hverja götu. Fiskmarkaðurinn La Pescheria, Piazza del Duomo og dagsferð til Taormina.
Verð frá 146.900 kr.
Upplifðu töfra Sikileyjar í október! Catania er lífleg borg við rætur eldfjallsins Etna þar sem saga, menning og einhver besta matargerð Ítalíu mætast. Í október er veðrið dásamlegt, sólin enn hlý en mesti ferðamannastraumurinn farinn, sem gefur þér svigrúm til að njóta hverrar stundar til fulls.
Borgin er prýdd stórfenglegum barokkbyggingum og Piazza del Duomo með fílfontænum er hjarta miðbæjarins. Fyrir matgæðinga er heimsókn á fiskimarkaðinn (La Pescheria) ógleymanleg upplifun þar sem hægt er að bragða á ferskum krækisingum og sikileyskum sérkennum í iðandi mannlífi.
Heimsókn upp á Etnu er hápunktur ferðarinnar fyrir marga en þar er hægt að fara í skipulagðar ferðir eða keyra upp í hlíðarnar og njóta útsýnisins yfir eyjuna. Einnig er stutt að fara til hinnar rómantísku Taormina þar sem gríska leikhúsið gnæfir yfir bláum sjónum.
Þar sem þú bókar flug og gistingu ákveður þú hraðann sjálfur – hvort sem þú vilt eyða deginum á kaffihúsum með „granita og brioche“ eða skoða fornar rústir og fallegar strandir!
Sikiley er þekkt fyrir matinn sinn. Ekki missa af því að smakka „Arancini“ (djúpsteiktar hrísgrjónabollur) eða „Cannoli“ fyllt með sætum ricotta osti. Verðlagið á veitingastöðum er mjög sanngjarnt og gæðin á hráefninu eru einstök!
Catania býður upp á frábæra verslunargötu, Via Etnea, þar sem finna má allt frá þekktum vörumerkjum yfir í ítalska hönnun. Einnig eru stórar verslunarmiðstöðvar rétt utan við borgina fyrir þá sem vilja gera góð kaup.
Það er auðvelt að taka lestina frá Catania til nærliggjandi bæja eins og Siracusa eða Taormina. Fyrir þá sem vilja skoða eyjuna á eigin vegum er mjög mælt með því að leigja bíl en athugið að ítölsk umferð getur verið lífleg!
Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net.
Verð frá 146.900 kr.
30. október – 2. nóvember
Gamall miðbær, art-nouveau og djarfur nútímaarkitektúr í sömu borginni. Paella þar sem hún á heima og sandströnd í göngufæri.
Verð frá 134.900 kr.
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 4 nætur á hóteli.
Í þessari ferð sækjum við heim eina fallegustu borg Spánar, Valencia. Borgin, sem er þriðja stærsta borg landsins, stendur á gömlum merg en er frísk og framsækin strandborg. Hér má njóta menningar, arkitektúrs, gómsætra rétta, sögu, blússandi mannlífs á milli þess sem flatmagað er á sandströndinni.
Undanfarna tvo áratugi hefur þriðja stærsta borg Spánar, Valencia, tekið sannkölluðum stakkaskiptum. Gríðarleg uppbygging hefur átt sér stað og nú er svo komið að borgin hreiðrar um sig á topplistum fyrir glæsilegan og nútímalegan arkitektúr í bland við fjölmargar art-nouveau byggingar sem umlykja götur og torg. Og enn eldri stílar, t.d. Gotneskur og Endurreisnarstíll, setja lit á fjölmörg minnismerki og byggingar. Þessi hringiða myndar órofa magnaða heild utan um fjölmörg metnaðarfull söfn, iðandi fjöld veitingahúsa, létt leikandi götulíf, frábærar verslanir og kílómetralanga strönd.
Sumir halda því fram að Valencia standi í skugganum af stóru systrum sínum, Madrid og Barcelona. Margir telja þó Valencia vera fallegust systranna, þarf ekki að látast og sýnast en hægt og sígandi skapar hún sinn eigin stíl og sjarma. Valencia er einstaklega ljúf heim að sækja með kraftmikla menningu, sína fínu matarhefð og iðandi næturlíf. Íbúarnir eru framsæknir, ávallt tilbúnir að reyna eitthvað nýtt og spennandi.
Hvaða borg önnur hefur tekið í sínar hendur fljótið sem rann um borgina (Turia) og gerði oft usla með miklum flóðum, og fundið því nýjan farveg framhjá borgarstæðinu. Í gamla árfarveginum var byggður upp iðandi grænn garður sem teygir sig í gegnum byggðina þar sem skiptast á blómleg gróðursvæði og opnar grundir fyrir útivist og afslöppun. Þar á meðal má finna glæsilegar Modernista byggingar, flott söfn, langa sandströnd og gamla borgarhlutann á sitt hvorum bakkanum.
Umhverfis Valencia má segja að séu samfelldir matjurtagarðar er framleiða hráefni fyrir fjölmörg veitingahús borgarinnar, ekki síst í hina vinælu Paella, eins þjóðarrétta Spánverja. Sönnun fyrir frjósemi jarðvegsins og blíðu loftslagi.
Sumarið í Valencia er talið standa frá júní og út október. Í meðalári er yfir 20 stiga hiti í október en peysa kemur sér vel er kvölda tekur. Betri heimsóknartími er vart í boði þar sem hitinn er þægilegur, þyngsti ferðamannastraumurinn fyrir bí en borgin enn í sumarbúningi.
Það er nánast skylda að smakka Horchata í Valencia. Þetta er svalandi drykkur gerður úr jarðmöndlum (tiger nuts). Hann er sérstaklega vinsæll á heitum dögum!
Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net.
Verð frá 134.900 kr.
21.–25. apríl
Apríl er hinn besti tími til að heimsækja Granada. Vorið er komið, dagarnir orðnir lengri og borgarlífið verður líflegra.
Verð frá 146.900 kr.
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting og íslensk fararstjórn.
Apríl er hinn besti tími til að heimsækja Granada. Vorið er
komið, dagarnir orðnir lengri og borgarlífið verður líflegra. Tilvalinn árstími
til að skoða borgina, rölta um gömlu hverfin og njóta kaffihúsa, veitingastaða
og útisvæða borgarinnar.
Hvort sem þú vilt upplifa sögu og menningu borgarinnar, njóta ekta tapas-matargerðar eða einfaldlega slappa af, að þá er Granada hinn fullkomni áfangastaður!
Granada er ein af perlum Andalúsíu og heillandi borg þar sem litrík saga, einstök byggingarlist og spænsk matarmenning mætast. Borgin stendur við rætur Sierra Nevada-fjallanna og er fullkominn áfangastaður fyrir þá sem vilja njóta góðs matar, menningar og fallegs umhverfis. pasting
Helsta kennileiti Granada er án efa Alhambra, hin stórbrotna höll og virki sem horfir yfir borgina. Þar er hægt að ganga um glæsilegar hallir, fallega húsagarða og gróðursæla Generalife-garðana og kynnast ríkri sögu Granada. Alhambra ásamt Generalife-garðanna og gamla Albaicín-hverfinu er á heimsminjaskrá UNESCO og heimsókn þangað er ein af þeim upplifunum sem einkenna borgarferð til Granada.
Miðborg Granada býður sömuleiðis upp á skemmtilega blöndu af sögu og borgarlífi. Þar er meðal annars hægt að skoða hina glæsilegu dómkirkju Granada, rölta um verslunargötur og torg eða einfaldlega koma sér fyrir á kaffihúsi og fylgjast með mannlífinu.
Granada er frábær matarborg og tapas-menningin er stór hluti af upplifuninni. Skemmtilegt er að rölta um á milli tapasbara, smakka mismunandi rétti og njóta líflegs andrúmslofts borgarinnar.
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 146.900 kr.
22.–26. apríl
Ljubljana er falleg og notaleg borg þar sem sögulegur miðbær, litrík byggingarlist og afslappað borgarlíf skapa einstaka stemningu.
Verð frá 133.900 kr.
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting og íslensk fararstjórn.
Ljubljana er falleg og notaleg borg þar sem sögulegur miðbær, litrík byggingarlist og afslappað borgarlíf skapa einstaka stemningu. Áin Ljubljanica liðast í gegnum hjarta borgarinnar og meðfram henni má finna lífleg kaffihús, veitingastaði og fallegar gönguleiðir.
Borgin er hæfilega lítil til að auðvelt sé að skoða hana fótgangandi og margt af því áhugaverðasta er að finna í og við gamla bæinn. Ljubljana hentar því einstaklega vel í borgarferð þar sem hægt er að njóta menningar, góðs matar og fallegs umhverfis án þess að þurfa að flýta sér á milli staða.

Eitt helsta kennileiti Ljubljana er Ljubljana-kastalinn, sem stendur á hæð fyrir ofan gamla bæinn. Þaðan er fallegt útsýni yfir borgina og nærliggjandi svæði. Hægt er að ganga upp að kastalanum eða fara þangað með kláfi frá miðborginni.
Í gamla bænum má sjá fjölbreytta byggingarlist og rölta um þröngar götur og falleg torg. Prešeren-torgið er eitt helsta samkomusvæði borgarinnar og þar stendur hin áberandi bleika Fransiskanakirkja.
Rétt hjá er Þrefalda brúin, eitt þekktasta kennileiti Ljubljana. Brúin tengir Prešeren-torgið við gamla bæinn og er gott dæmi um þá einstöku byggingarlist sem einkennir miðborgina. Önnur þekkt brú er Drekabrúin, en drekinn er eitt af táknum Ljubljana og sést víða um borgina.
Gamli bær Ljubljana er hjarta borgarinnar og þar er einstaklega notalegt að verja deginum. Stór hluti miðborgarinnar er lokaður fyrir bíla og því ríkir þar rólegt og afslappað andrúmsloft.
Meðfram Ljubljanica-ánni er fjöldi kaffihúsa, bara og veitingastaða þar sem hægt er að koma sér fyrir og fylgjast með mannlífinu. Á hlýrri dögum fyllast útisvæðin af lífi og á kvöldin skapast skemmtileg stemning við árbakkann.
Markaður Ljubljana er einnig vel þess virði að heimsækja. Þar má finna ferskt hráefni og ýmsar slóvenskar vörur og fá góða tilfinningu fyrir daglegu lífi heimamanna.
Matarmenning borgarinnar endurspeglar vel staðsetningu Slóveníu á milli Mið-Evrópu, Alpanna, Balkanskagans og Miðjarðarhafsins. Úr verður fjölbreytt matargerð þar sem hefðbundnir slóvenskir réttir blandast nútímalegri matarmenningu.
Í borginni er að finna allt frá litlum kaffihúsum og hefðbundnum veitingastöðum yfir í nútímalega staði sem leggja áherslu á staðbundið hráefni. Meðal þess sem gaman er að prófa eru slóvenskar pylsur, staðbundnir ostar og potica, hefðbundin rúllukaka sem oft er fyllt með valhnetum.
Vínrækt á sér einnig langa sögu í Slóveníu og á veitingastöðum borgarinnar er gott tækifæri til að kynnast slóvenskum vínum frá ólíkum héruðum landsins.
Ljubljana er einstaklega græn borg og náttúran er aldrei langt undan. Tivoli-garðurinn er stærsta græna svæði borgarinnar og vinsæll meðal heimamanna til gönguferða, útivistar og afslöppunar.
Staðsetning Ljubljana gerir borgina jafnframt að góðum upphafsstað fyrir þá sem vilja sjá meira af Slóveníu. Fjöll, vötn og falleg sveitasvæði eru í þægilegri fjarlægð og meðal vinsælustu áfangastaðanna er Bled-vatn, sem er þekkt fyrir einstakt landslag, litla eyju og kastala sem stendur hátt yfir vatninu.
Ljubljana sameinar því það besta úr notalegri borgarferð og nálægð við fallega náttúru. Hér er auðvelt að hægja á sér, rölta um borgina og njóta slóvenskrar menningar og afslappaðs andrúmslofts.
Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 133.900 kr.
13.–17. maí
Ljubljana hentar einstaklega vel í borgarferð þar sem hægt er að njóta menningar, góðs matar og fallegs umhverfis án þess að þurfa að flýta sér á milli staða.
Verð frá 150.900 kr.

14.–17. maí
Það er fátt betra en að villast um þröngar götur gamla bæjarins, setjast niður á sólríku torgi eða kíkja á iðandi matarmarkaði borgarinnar.
Verð frá 137.900 kr.
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting og íslensk fararstjórn.
Vorið fer Palermo einstaklega vel. Í apríl er veðrið yfirleitt milt og notalegt og kjöraðstæður skapast til að verja dögunum utandyra. Það er fátt betra en að villast um þröngar götur gamla bæjarins, setjast niður á sólríku torgi eða kíkja á iðandi matarmarkaði borgarinnar.
Palermo hentar vel fyrir þá sem vilja sameina menningu, mat og afslöppun í einni og sömu ferðinni. Hér mætast ítalskur lífsstíll og sterk sikileysk menning sem gefa borginni alveg sérstakan karakter.

Palermo er höfuðborg Sikileyjar og borg með óvenju fjölbreytta fortíð. Arabísk, normönsk, spænsk og ítölsk áhrif hafa öll sett mark sitt á borgina og sjást víða í byggingarlist, matargerð og menningu. Útkoman er litrík og lífleg borg þar sem glæsilegar hallir og kirkjur standa við hlið iðandi markaða, veitingastaða og þröngra húsasunda.
Meðal þekktustu kennileita borgarinnar er dómkirkjan í Palermo, tilkomumikil bygging sem hefur tekið miklum breytingum í gegnum aldirnar. Skammt frá stendur Palazzo dei Normanni, Normannahöllin, en innan hennar er hina glæsilegu Cappella Palatina að finna. Kapellan er sérstaklega þekkt fyrir gullnar mósaíkmyndir og ríkulegar skreytingar.
Í gamla bænum er gaman að rölta um svæðið í kringum Quattro Canti, eitt þekktasta kennileiti Palermo. Þaðan liggja götur í allar áttir að sögulegum byggingum, litlum verslunum og líflegum torgum. Þar skammt frá er Piazza Pretoria, fallegt torg sem þekkt er fyrir stóran og ríkulega skreyttan gosbrunn.
Ekki síður áhugaverð eru gömlu markaðshverfi Palermo. Ballarò, Capo og Vucciria gefa góða innsýn í hversdagslífið á Sikiley. Þar fyllast göturnar af sölubásum, kryddilmi og köllum kaupmanna og auðvelt er að eyða góðum tíma í að skoða úrvalið og smakka á því sem heimamenn hafa upp á að bjóða.
Vilji maður skipta borgarlífinu út fyrir smá strandstemningu er Mondello-ströndin skammt undan. Hún liggur í fallegri vík norðan við miðborgina og er vinsæll áfangastaður heimamanna. Þar má rölta meðfram sjónum, fá sér hádegisverð eða einfaldlega njóta þess að vera við Miðjarðarhafið.
Maturinn er órjúfanlegur hluti af heimsókn til Palermo. Sikileysk matargerð byggir á einföldu og bragðmiklu hráefni og götumatarmenning borgarinnar er sérstaklega þekkt. Á mörkuðunum má meðal annars smakka arancine, fylltar og djúpsteiktar hrísgrjónakúlur, panelle, steiktar kjúklingabaunakökur, og ýmsa rétti úr fersku sjávarfangi.
Svo má auðvitað ekki gleyma sætabrauðinu. Cannoli og cassata eru meðal klassískra sikileyskra eftirrétta og passa einstaklega vel með góðum ítölskum kaffibolla. Palermo er borg þar sem matur, mannlíf og saga fléttast saman og best er að gefa sér góðan tíma til að njóta alls þess sem hún hefur upp á að bjóða.
Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 137.900 kr.
Úrval Útsýn, Hlíðasmára 6, 201 Kópavogi
Skrifstofa opin 12 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)
Þjónustu- og söluver +354 585 4000
Opið 9 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)