Veldu flokk
Veldu ferð fyrir neðan eða skrollaðu niður til að fletta gegnum allar ferðir.
Ingibjörg Lárusdóttir
Fararstjóri
23. febrúar – 9. mars
Ógleymanleg sigling um Suður-Ameríku þar sem stórborgir, suðrænar strendur og einstök brasilísk lífsgleði mætast.
Verð frá 839.000 kr.
Flug fram og til baka ásamt flugvallagjöldum, sköttum, ferðatösku og handfarangri, gisting með morgunverði í Buenos Aires, sigling með Costa Serena í völdum klefa með fullu fæði, akstur og skoðunarferð samkvæmt dagskrá, íslensk fararstjórn.
Komdu með í einstaka ferð til Suður-Ameríku þar sem við sameinum dvöl í heillandi Buenos Aires og glæsilega siglingu með Costa Serena, með viðkomu í Úrúgvæ og á nokkrum af fegurstu stöðum Brasilíu.
Ferðin hefst í Buenos Aires, hinni litríku og ástríðufullu höfuðborg Argentínu. Þar fáum við tíma til að kynnast borginni áður en haldið er um borð í Costa Serena og siglt af stað í sannkallað suður-amerískt ævintýri.

Á siglingunni heimsækjum við Montevideo í Úrúgvæ og siglum síðan meðfram stórbrotinni strandlengju Brasilíu. Þar bíða okkar meðal annars Balneário Camboriú, Angra dos Reis, Rio de Janeiro og Ilhabela, staðir sem bjóða upp á allt frá heimsfrægum kennileitum og suðrænum ströndum til grænna eyja og brasilískrar lífsgleði.
Á milli áfangastaða njótum við lífsins um borð, þar sem ferðalagið sjálft verður hluti af upplifuninni. Ferðinni lýkur þar sem hún hófst, í Buenos Aires, áður en flogið er aftur heim til Íslands.

Ingibjörg Lárusdóttir hóf störf sem fararstjóri hjá Sigurði Magnússyni í Grikklandi ung að árum og talar grísku reiprennandi.
Hún hefur starfað í ferðaþjónustu allar götur síðan, samhliða störfum sínum sem lögfræðingur. Ingibjörg hefur verið fararstjóri fyrir Úrval Útsýn í ferðum til Taílands, Ítalíu, Þýskalands, Frakklands og Grikklands, auk þess að hafa stýrt siglingum víða um heim.
Ingibjörg hefur einstaka nærveru og leysir úr öllum málum eins og hendi sé veifað.
Þessi ferð er frábær blanda af borgarlífi, menningu, afslöppun, suðrænum áfangastöðum og glæsilegri siglingu.



Suður-Ameríka eins og hún gerist best, fjölbreytt, litrík og ógleymanleg.
Í Buenos Aires gistum við á Carles Hotel Buenos Aires, fjögurra stjörnu hóteli í Recoleta-hverfinu. Gist er í Executive-herbergjum með morgunverði. Hótelið býður meðal annars upp á ókeypis Wi-Fi, líkamsræktaraðstöðu og sólarhringsmóttöku.
Fyrir siglinguna gistum við þrjár nætur á hótelinu, frá 24. til 27. febrúar. Eftir að siglingunni lýkur gistum við þar aftur eina nótt, frá 8. til 9. mars.
Innifalið í dvölinni er einkaflutningur milli Ezeiza-flugvallar, hótels og hafnar, móttaka tvítyngds staðarleiðsögumanns við komu og hálfs dags einkaskoðunarferð um Buenos Aires.
Buenos Aires • Montevideo • Balneário Camboriú • Angra dos Reis • Rio de Janeiro • Ilhabela
Flogið er frá Keflavík með Icelandair til Amsterdam og þaðan áfram með KLM til Buenos Aires. Á heimleið er flogið með KLM frá Buenos Aires til Amsterdam og áfram með Icelandair til Keflavíkur.
Flogið frá Keflavík með Icelandair til Amsterdam kl. 07:40. Þaðan höldum við áfram með KLM yfir Atlantshafið til Buenos Aires í Argentínu.
Fram undan er spennandi ferð um þrjú lönd Suður-Ameríku, Argentínu, Úrúgvæ og Brasilíu.
Lent í Buenos Aires kl. 07:45.
Við komu tekur tvítyngdur staðarleiðsögumaður á móti hópnum og einkabifreið flytur okkur frá Ezeiza-flugvelli á Carles Hotel Buenos Aires. Gist er í Executive-herbergjum með morgunverði fram að siglingu 27. febrúar.
Buenos Aires er ein mest heillandi stórborg Suður-Ameríku, glæsileg, lífleg og full af karakter. Hér blandast evrópskur arkitektúr, suður-amerísk ástríða, tangó, frábær matarmenning og iðandi mannlíf.
Við komuna gefst tími til að koma sér fyrir og byrja að njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
Í dag förum við í hálfs dags einkaferð um Buenos Aires með tvítyngdum staðarleiðsögumanni og akstri.
Við heimsækjum meðal annars Plaza de Mayo, San Telmo, La Boca, Puerto Madero, Teatro Colón, Recoleta-hverfið, bókabúðina El Ateneo Grand Splendid og Floralis Generica.
Einnig er komið við við lagadeild Háskólans í Buenos Aires og farið í Recoleta-kirkjugarðinn. Aðgangseyrir í kirkjugarðinn er innifalinn.

Dagurinn er frjáls og kjörið að njóta Buenos Aires á eigin hraða.
Rölta má um lífleg hverfi borgarinnar, setjast niður á kaffihús, skoða verslanir, njóta argentínskrar matargerðar eða einfaldlega drekka í sig stemninguna.
Nú hefst nýr kafli ferðalagsins.
Við förum um borð í Costa Serena í Buenos Aires og komum okkur fyrir. Fram undan eru spennandi dagar á Atlantshafinu með viðkomu í Úrúgvæ og Brasilíu.
Einkabifreið flytur hópinn frá Carles Hotel að höfninni í Buenos Aires.
Nú er bara að koma sér vel fyrir, kanna skipið og njóta þess að vera komin um borð.
Fyrsti viðkomustaður siglingarinnar er Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ.
Borgin stendur við Río de la Plata og sameinar fallega gamla borgarhluta, torg, markaði og afslappað suður-amerískt borgarlíf. Hér gefst tækifæri til að upplifa annan takt en í stórborginni Buenos Aires og kynnast þessari skemmtilegu höfuðborg.
Heill dagur á sjó þar sem ekkert liggur á.
Nú gefst tími til að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða, slaka á, njóta góðs matar, sólar og skemmtunar eða einfaldlega horfa út yfir Atlantshafið.
Brasilía tekur á móti okkur!
Við komum til Balneário Camboriú, vinsæls strandáfangastaðar þar sem háhýsi, breiðar sandstrendur og lífleg brasilísk stemning skapa skemmtilega blöndu.
Hér fáum við okkar fyrstu alvöru kynni af brasilísku strandlífi.

Í dag bíður ein af náttúruperlum ferðarinnar, Angra dos Reis.
Svæðið er þekkt fyrir grænar eyjar, tærbláan sjó og stórbrotið landslag. Hér mætast gróðursæl fjöll og Atlantshafið og útkoman er sannkölluð suðræn paradís.

Ógleymanlegur dagur þegar við komum til hinnar stórbrotnu Rio de Janeiro.
Fáar borgir eiga jafn auðþekkjanlega ásýnd. Græn fjöll rísa upp úr borginni, heimsfrægar strendur liggja meðfram Atlantshafinu og yfir öllu vakir Kriststyttan fræga.
Copacabana, Ipanema, Sykur-fjallið og lífsgleði heimamanna hafa gert Rio að einni þekktustu borg heims.
Þetta er sannarlega einn af hápunktum ferðarinnar.

Siglt er til Ilhabela, eða „fallegu eyjunnar“, eins og nafnið gefur til kynna.
Gróskumikill gróður, fallegar strendur og afslappað eyjalíf einkenna þennan heillandi áfangastað. Hér er kjörið að njóta síðasta brasilíska viðkomustaðarins áður en stefnan er tekin aftur í átt að Argentínu.

Tveir notalegir dagar á sjó.
Nú gefst góður tími til að slaka á eftir viðburðaríka daga í Brasilíu og njóta skipsins til fulls.
Góður matur, afslöppun og útsýni yfir Atlantshafið skapa fullkominn endi á siglingunni áður en við komum aftur til Buenos Aires.
Skipið kemur til Buenos Aires að morgni.
Einkabifreið flytur hópinn frá höfninni á Carles Hotel Buenos Aires. Gist er eina nótt í Executive-herbergjum með morgunverði.
Við kveðjum Costa Serena eftir ævintýralega siglingu og eigum aftur tíma í þessari heillandi borg.
Eftir daga á sjó og við brasilísku ströndina er gaman að fá aftur að njóta argentínsku höfuðborgarinnar áður en heimferðin hefst.
Við njótum síðustu stundanna í Buenos Aires áður en einkabifreið flytur hópinn frá hótelinu til Ezeiza-flugvallar.
Klukkan 17:00 er flogið með KLM frá Buenos Aires til Amsterdam.
Við kveðjum Suður-Ameríku með ferðatöskuna fulla af minningum eftir ótrúlega fjölbreytta ferð.
Frá Amsterdam er flogið áfram með Icelandair til Íslands.
Lent er á Keflavíkurflugvelli kl. 15:20 og þar lýkur ævintýrinu eftir ferð þar sem við höfum upplifað þrjú lönd, heimsborgir, suðrænar strendur og einstaka siglingu meðfram ströndum Suður-Ameríku.
Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net.
Verð frá 839.000 kr.
Kristín A. Árnadóttir
Fararstjóri
18.–28. mars
Töfrandi páskasigling frá Róm. Kristín A. Árnadóttir tryggir stórbrotna upplifun.
Verð frá 559.900 kr.
Beint flug með Icelandair til og frá Róm, ferðataska og handfarangur, 3 nætur á 4 stjörnu hóteli í Róm með morgunverði, 7 nætur um borð í Costa Toscana með fullu fæði, allur akstur samkvæmt dagskrá, íslensk fararstjórn.
Komdu með í rómaða Miðjarðarhafssiglingu sem sameinar menningu, sögu, stórbrotna áfangastaði og þægilega dvöl um borð í glæsilegu skemmtiferðaskipinu Costa Toscana. Skipið er sannkallaður heimur út af fyrir sig, þar sem fjölbreytt afþreying, veitingastaðir og notaleg stemning tryggja að engum leiðist á meðan siglingunni stendur.
Ferðin hefst og lýkur í Róm, þar sem gist er bæði fyrir og eftir siglingu. Þar gefst kostur á að kynnast hinni fornu borg með skipulögðum skoðunarferðum, meðal annars um hina gömlu Róm og með heimsókn í Vatíkanið, auk þess sem frjáls tími er til að njóta borgarinnar á eigin forsendum.
Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking.
Flogið með Icelandair FI930 klukkan 08:20 og lent í Róm 14:00. Rúta nær í hópinn og keyrir á hótel.
Að morgunverði loknum getur fólk tekið því rólega þar til komið er að því að skrá sig út af hótelinu. Rúta flytur hópinn frá hótelinu að Civitavecchia-höfn þar sem gengið verður um borð í hið glæsilega skip Costa Toscana. Siglt verður af stað klukkan 19:00.
M, H, K
Kl. 08:30 verður lagt að höfn í Savona sem staðsett er í Liguria héraðinu á Ítalíu. Liguria héraðið er þekkt sem ítalska rívíeran vegna fjölmargra strandbæja sem þekja strandlengjuna beggja vegna við Genoa sem er höfuðborg héraðsins. Savona er sannur gimsteinn hvað varðar list, sögu og menningu en borgin hefur sannarlega upplifað tímana tvenna. Einn frægasti íbúi Savona var Kristófer Kólumbus en hægt er að skoða safn sem er í enduruppbyggingu af húsinu sem hann bjó í. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð hjá Costa Cruise en einnig er hægt að skoða borgina á eigin vegum.
M, H, K
Komið er til Marseille kl. 09:00 að morgni og verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að skoða borgina á eigin vegum. Munið bara að vera komin tímalega til baka um borð þegar skipið fer úr höfn kl. 18.
Marseille er elsta borg Frakklands, stofnuð af Grikkjum árið 600 f.Kr. Frábær staðsetning borgarinnar við Miðjarðarhafið hefur frá upphafi stofnunar hennar gert hana að vinsælum áningarstað og má þar sjá greinileg áhrif frá jafnvel mjög fjarlægum menningarheimum. Marseille, stundum kölluð "Napólí Frakklands", er litrík og glöðleg borg en í henni er mikil matarmenning og margt áhugavert að sjá.
M, H, K
Lagt að höfn í Barcelona kl. 09:00. Hr er nóg að gera og því tilvalið að taka daginn snemma.
Í borginni er bæði Picasso safnið og nýstárlegt samtímalistasafnið Macba. Ennfremur eru margar litríkar og stórmerkilegar byggingar eftir Antoní Gaudí sem og dómkirkjan fræga Sagrada Familia sem enn er ekki búið að klára, en bygging hennar hófst árið 1882. Hvort heldur sem valið er að rölta um þröngar götur í Barrio Gothico, þræða tapasbari og rölta um Römluna, versla í tískuverslunum eða kíkja á listasafn, þá er Barcelona borgin fyrir þetta allt saman og miklu meira! Eins og áður þá verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu.
Lagt úr höfn kl. 19:00 stundvíslega.
M, H, K
Velkomin til Palma de Mallorca – einnar fallegustu hafnar Miðjarðarhafsins. Skipið leggst að bryggju kl. 07:30 og siglir aftur kl. 17:00, sem gefur góðan tíma til að njóta borgarinnar.
Palma býður upp á einstaka blöndu af sögu, menningu, verslun og notalegu borgarlífi. Frá höfninni er auðvelt að komast í miðbæinn með leigubíl, skutlu eða almenningssamgöngum. Byrjið daginn á heimsókn að glæsilegri dómkirkjunni La Seu, einu þekktasta kennileiti eyjarinnar. Þaðan er tilvalið að rölta um þröngar steinlagðar götur gamla bæjarins, skoða falleg torg, sögulegar byggingar og notaleg kaffihús.
M, H, K
Komið er til Palermo kl. 8:00 að morgni og er hægt að velja um fjölda skoðunarferða til kaups hjá Costa Cruise. Höfuðborg Sikileyjar hefur verið menningarlegur suðupottur síðan Föníkíumenn og Grikkir börðust um hana á 5. og 6. öld f.Kr. Sikiley, einu sinne rómversk, svo býsönsk, arabísk, normönsk og að lokum ítölsk, sameinaðist meginlandi Ítalíu loks árið 1861. Dásamlegir markaðir, fögur torg, aldagamlar kirkjur ásamt stórbrotinni sögu og menningu! Hér er margt að skoða og sjá. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borg hjá Costa Cruise eða kanna á eigin vegum.
M, H, K
Komið verður að Civitavecchia höfninni í Róm kl. 08:00 að morgni. Hópurinn yfirgefur skipið og rúta flytur okkur á 4 stjörnu hótel. Frjáls tími það sem eftir er af deginum.
M, H
Frjáls dagur í Rómaborg. Valfrjáls skoðunarferð í Vatíkanið. Keypt aukalega í bókunarferli.
M
Um hádegisbil sækir rúta hópinn og flytur út á flugvöll.
Brottför kl. 15:45 með Icelandair flugi FI930, lending í Keflavík kl. 18:40 að staðartíma.
M
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 559.900 kr.
Kristín A. Árnadóttir
Fararstjóri
12.–28. maí
17 daga lúxusferð um Dóná með öllu inniföldu. Átta lönd, höfuðborgir og smábæir við fljótið.
Verð frá 1.030.000 kr.
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting fyrstu nótt í Passau, allur akstur, sigling með VIVA Cruises í völdum klefaflokki, fullt fæði um borð ásamt drykkjum, þjórfé og minibar.
Komdu með í ógleymanlega siglingu með Viva Cruises þar sem þú ferðast um hjarta Evrópu eftir hinni tignarlegu Dóná. Á þessari einstöku ferð kynnistu glæsilegum höfuðborgum, heillandi smábæjum, ríkulegri menningu og stórbrotinni náttúru á leið um átta lönd.
Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking.
Ferðin hefst í Passau í Þýskalandi, hinni fallegu „borg þriggja fljóta“, þar sem stigið er um borð í glæsilegt skip Viva Cruises. Fyrsti áfangastaðurinn er Vín í Austurríki, borg tónlistar, lista og keisaralegrar sögu. Þar bíða glæsilegar hallir, fallegar götur og notaleg kaffihús sem skapa einstaka stemningu.
Þaðan er siglt til Búdapestar, hinnar glæsilegu höfuðborgar Ungverjalands. Borgin, sem Dóná skiptir í Búda og Pest, heillar gesti með stórfenglegri byggingarlist, sögulegum minjum og líflegu mannlífi.
Siglingin heldur áfram suður eftir Dóná til Króatíu með viðkomu í Batina áður en komið er til Serbíu. Í Novi Sad gefst tækifæri til að skoða hið glæsilega Petrovaradin-virki og njóta notalegs andrúmslofts gamla bæjarins. Í Belgrad, þar sem Dóná og Sava mætast, tekur á móti þér kraftmikil borg með langa og áhugaverða sögu, fjölbreyttri menningu og líflegu mannlífi.
Næst liggur leiðin til Búlgaríu með viðkomu í Ruse, sem gjarnan er kölluð „Litla Vín“, og síðan til Vidin þar sem hið glæsilega Baba Vida-virki stendur vörð við árbakkann og minnir á miðaldasögu svæðisins.
Frá Búlgaríu er haldið til Rúmeníu með viðkomu í Fetești og Hârșova, þar sem landslagið tekur á sig nýja mynd og saga Dónár verður enn fjölbreyttari í átt að Svarta hafinu.
Einn af hápunktum ferðarinnar er siglingin um Iron Gates (Járnhliðin), hið stórbrotna gljúfrasvæði á landamærum Serbíu og Rúmeníu. Þar þrengir áin sér á milli háreistra kletta og stórfenglegt útsýni blasir við í hverri beygju. Þessi kafli Dónár er talinn einn fallegasti hluti árinnar og skilur eftir ógleymanlegar minningar.
Á þessari einstöku ferð færð þú tækifæri til að upplifa ólíka menningu, stórbrotna náttúru og sögufræga staði á þægilegan hátt um borð í glæsilegu skipi Viva Cruises. Slökun, fyrsta flokks þjónusta, góður matur með öllu inniföldu ásamt áfengum og óáfengum drykkjum, þjórféi og minibar sem fyllt er á tvisvar á dag og spennandi áfangastaðir gera þessa siglingu að sannkallaðri draumaferð fyrir alla sem vilja kynnast Evrópu frá nýju sjónarhorni. Í skipinu eru 3 veitingastaðir. Morgunmatur og margrétta hádegisverður og kvöldverður innifalin allan tímann. Hægt er að skoða borgir á eigin vegum eða kaupa skoðunarferðir hjá Viva um borð. Skipið er fyrsta flokks og hægt er að fara í spa eða heita pottinn á þakinu eða liggja sólardekkinu og slaka á og láta þjóna sér með drukki eða létt snarl.
Flogið með Icelandair til Munchen með FI532 klukkan 07:20 og lent 13:05. Rúta sækir hópinn og keyrir til Passau þar sem gist er á hóteli um nóttina.
Eftir morgunverð er hópurinn keyrður um borð í Viva Two lúxus fljótaskip Viva Cruises. Skipið siglir klukkan 16:30.
Komið er til Vínarborgar klukkan 13:00 og siglt aftur klukkan 19:00.
Komið til Solt í Ungverjalandi klukkan 14:00 og siglt aftur 14:30.
Komið til Kalocsa í Ungverjalandi 17:30 og siglt þaðan 18:00.
Komið til Batina í Ungverjalandi 23:00 og siglt þaðan 23:30.
Komið til Novi Sad í Serbíu klukkan 08:30 og siglt aftur 09:30.
Komið til Belgrad höfuðborgar Serbíu klukkan 13:30 og siglt aftur 23:30.
Dagur til að njóta og slaka á.
Skipið kemur til Ruse í Búlgaríu klukkan 09:00 og siglir aftur klukkan 10:00.
Skipið kemur til Fetești í Rúmeníu 18:30 og siglir aftur klukkan 19:30.
Skipið kemur til Hârșova í Rúmeníu klukkan 23:30.
Dagur í Hârșova í Rúmeníu. Hægt er að kaupa ferðir niður að Svarta hafinu. Skipið siglir klukkan 23:00.
Komið til Fetești í Rúmeníu klukkan 05:00 og siglt aftur klukkan 14:00.
Skipið kemur til Ruse í Búlgaríu klukkan 07:00 og siglir aftur klukkan 13:00.
Komið til Svishtov í Búlgaríu klukkan 17:00 og siglt aftur 17:30.
Komið til Vidin í Búlgaríu klukkan 08:30 og siglt aftur 14:00.
Skipið kemur til Donji Milanovac í austur Serbíu klukkan 06:30 og siglir aftur klukkan 09:00.
Komið til Golubac í Serbíu klukkan 12:30 og siglt aftur 13:30.
Skipið kemur til Vukovar í austur Króatíu klukkan 09:00 og siglir aftur 12:30.
Komið til Búdapest í Ungverjalandi klukkan 11:00 og siglt þaðan klukkan 19:00.
Skipið kemur til Bratislava í Slóvakíu klukkan 13:00 og siglt aftur klukkan 17:00.
Skipið kemur til Melk í Austurríki 10:30 og siglir aftur klukkan 14:00.
Skipið kemur til Passau klukkan 08:00. Eftir morgunverð er síðan hópurinn keyrður til Munchen þar sem flogið er heim með Icelandair FI 533 sem fer í loftið klukkan 14:05 og lendir í Keflavík klukkan 16:00.
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 1.030.000 kr.
Laufey Jóhannsdóttir
Fararstjóri
16.–26. september
Sjö nátta sigling með Costa Toscana frá Róm til Ítalíu, Frakklands og Spánar. Ferð sérstaklega ætluð Úrvalsfólki 60 ára og eldra.
Verð frá 599.900 kr.
Beint flug fram og til baka, ferðataska og handfarangur, gisting, fullt fæði, íslensk fararstjórn, skoðunarferð um Róm.
Sigling með Costa Toscana.
Róm – Savona – Marseille – Barcelona – Ibiza – Palermo – Róm
Góðar stundir með Úrvalsfólki! Ferðin er sérstaklega ætluð Úrvalsfólki 60 ára og eldra sem hefur gaman af því að kynnast nýjum stöðum í góðum félagsskap.
Í september er enn hlýtt við Miðjarðarhafið en mesti sumarhitinn og ferðamannafjöldinn eru að baki. Þá er einn besti tími ársins til að ferðast um svæðið.
Við hefjum ferðina í Róm og gistum þar í eina nótt. Við siglum frá Róm með Costa Toscana og komum við í fimm ólíkum borgum á Ítalíu, í Frakklandi og á Spáni. Að siglingu lokinni gistum við tvær nætur í Róm.
Í viðkomuhöfnunum má kaupa skoðunarferð sem hentar áhuga og göngugetu hvers og eins eða kanna nágrennið á eigin hraða.
Laufey hefur unnið í ferðabransanum frá árinu 1985 og við hin ýmsu störf allt frá því að vera leiðsögumaður yfir í að vera fyrsti framkvæmdastjóri Plúsferða. Hún leggur áherslu á útivist, hreyfingu og lífsgæði.
Þessi ferð er skemmtileg blanda af borgarlífi, menningu, afslöppun og glæsilegri siglingu um Miðjarðarhafið í góðum félagsskap.
Á siglingadögum er tilvalið að njóta lífsins á dekkinu, við sundlaugina eða í heilsulindinni. Á kvöldin hittist síðan hópurinn yfir kvöldverði og á góða stund saman með Laufeyju Jóhannsdóttur, fararstjóra ferðarinnar.
Í Róm gistum við á fjögurra stjörnu hótelinu Hotel Milton Roma með morgunverði. Gist er eina nótt fyrir siglinguna og tvær nætur eftir hana.
Róm • Civitavecchia • Savona • Marseille • Barcelona • Ibiza • Palermo
Flogið er frá Keflavík með Icelandair til Rómar. Þaðan er ekið til hafnarborgarinnar Civitavecchia þar sem siglingin með Costa Toscana hefst. Að siglingu lokinni er dvalið í Róm í tvær nætur áður en flogið er aftur heim til Íslands.
Við fljúgum frá Keflavík með Icelandair í flugi FI 930 kl. 07:50 og lendum í Róm kl. 14:35. Rúta flytur okkur á fjögurra stjörnu hótelið Hotel Milton Roma, þar sem við gistum eina nótt.
Eftir komuna gefst tími til að koma sér fyrir og njóta fyrsta kvöldsins í Róm.
Við höldum frá Róm til hafnarborgarinnar Civitavecchia og förum um borð í Costa Toscana. Þar komum við okkur fyrir í klefunum og kynnumst skipinu áður en siglingin um Miðjarðarhafið hefst.
Fyrsti viðkomustaðurinn er hafnarborgin Savona á Lígúríuströndinni. Þar er notalegt að rölta um gamla bæinn og skoða Priamar-virkið sem gnæfir yfir höfninni.
Tilvalið er að staldra við á torgi og smakka hina frægu lígúrísku focaccia og fá sér ítalskan kaffibolla.
Í Marseille liggur leiðin að gömlu höfninni, Vieux-Port, þar sem sjómenn selja enn aflann sinn á morgnana.
Frá basilíkunni Notre-Dame de la Garde, sem stendur hátt yfir borginni, er stórkostlegt útsýni yfir borgina og hafið.
Í þröngum götum Le Panier, elsta hverfis borgarinnar, leynast litlar verslanir og kaffihús. Hér er líka tilvalið að smakka bouillabaisse, fiskisúpuna sem borgin er fræg fyrir.
Barcelona heillar fólk aftur og aftur. Sagrada Família, meistaraverk Gaudís, er ógleymanleg sjón og í Gotneska hverfinu er gaman að villast um þröngar miðaldagötur.
Römblan og La Boqueria-markaðurinn eru skammt undan og þar er upplagt að fá sér tapas og fylgjast með mannlífinu.
Ibiza kemur mörgum skemmtilega á óvart. Gamli bærinn, Dalt Vila, er umlukinn virkisveggjum frá 16. öld og er á heimsminjaskrá UNESCO.
Hann rís yfir höfninni og þaðan er fallegt útsýni yfir eyjuna. Hvítkölkuð hús, litlar verslanir og rólegar víkur gefa eyjunni sjarmerandi blæ.
Dagurinn í dag er siglingadagur. Nú gefst góður tími til að slaka á og njóta alls þess sem skipið býður upp á.
Á Sikiley tekur Palermo á móti okkur með litríkum mörkuðum, barokkkirkjum og byggingum sem bera merki arabískra, normannskra og spænskra áhrifa.
Dómkirkjan og torgið Quattro Canti eru í göngufæri frá miðbænum og margir kjósa að fara upp til Monreale að skoða gullnar mósaíkmyndir dómkirkjunnar þar.
Svo má auðvitað ekki sleppa því að smakka sikileyskt bakkelsi á borð við cannoli.
Costa Toscana kemur til Civitavecchia að morgni. Frá höfninni höldum við í hálfsdags skoðunarferð um Róm og kynnumst sögu borgarinnar og svipmóti hennar.
Að ferð lokinni flytur rúta okkur á Hotel Milton Roma, þar sem við gistum í tvær nætur.
Við eigum heilan dag til að njóta Rómar á eigin forsendum.
Það má rölta milli torga, gefa sér góðan tíma í hádegisverð eða heimsækja stað sem hefur lengi verið á óskalistanum.
Rúta flytur okkur á flugvöllinn. Við fljúgum með Icelandair í flugi FI 931 kl. 15:45. Áætluð lending í Keflavík er kl. 18:40.
Costa Toscana sækir innblástur til ítalskrar hönnunar og gestrisni.
Á útidekkjunum má njóta útsýnisins yfir Miðjarðarhafið og um borð eru sundlaugar, setustofur og fjölbreytt kvöldskemmtun.
Eftir dag í landi er notalegt að hittast yfir kvöldverði og njóta sýningar að honum loknum.
Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður eru innifalin í verði siglingarinnar.
Hægt er að snæða í aðalmatsal skipsins eða á hlaðborðsveitingastaðnum eftir opnunartíma.
Á öðrum veitingastöðum skipsins er greitt sérstaklega fyrir máltíðir.
Drykkjarpakkar eru keyptir sérstaklega. Costa býður bæði upp á pakka fyrir óáfenga drykki og pakka sem ná til áfengra og óáfengra drykkja.
Hægt er að kaupa þá á netinu fyrir brottför eða um borð við upphaf siglingarinnar.
Costa Cruises býður upp á skoðunarferðir gegn gjaldi í hverri viðkomuhöfn.
Hægt er að bóka þær á netinu fyrir fram eða á söluskrifstofu skoðunarferða um borð, eftir framboði.
Í ferðalýsingunum koma fram helstu viðkomustaðir og hversu krefjandi hver ferð er.
Verð frá 599.900 kr.
Kristjana Steingrímsdóttir
Fararstjóri
23. september – 3. október
Sigldu frá Aþenu um heillandi grískar eyjar til Istanbúl. Njóttu sólar, sjávar og sögufrægra borga í skemmtisiglingu þar sem menning Grikklands og Tyrklands mætist.
Verð frá 739.900 kr.
Flug fram og til baka, ferðataska og handfarangur, gisting, fullt fæði, íslensk fararstjórn, skoðunarferð um Aþenu.
Sjö nátta sigling með Costa Pacifica.
Aþena – Istanbúl – Mykonos – Rhodos – Santorini – Heraklion – Aþena
Njóttu haustsins í heillandi ferð til Grikklands og Tyrklands. Í sjö nátta siglingu með Costa Pacifica heimsækjum við Istanbúl og nokkrar af fegurstu eyjum Grikklands. Hvítkölkuð hús, bláar kirkjuhvelfingar, sögufræg stræti og ljúffeng matargerð bíða okkar, ásamt notalegum stundum um borð.
Fyrir og eftir siglinguna dveljum við í Aþenu, þar sem gefst tækifæri til að njóta og kynnast merkri sögu borgarinnar.
Jana er viðskiptafræðingur að mennt og menntaður heilsumarkþjálfi með um 13 ára reynslu sem heilsukokkur. Hún var um árabil aðalkokkur og meðeigandi heilsuveitingastaðarins Happ í Lúxemborg og hefur einnig haldið matreiðslunámskeið fyrir hópa. Árið 2018 gaf hún út matreiðslubók með yfir 100 hollum uppskriftum. Jana hefur brennandi áhuga á góðum mat, heilsu, útivist og ferðalögum og leggur áherslu á hlýlega samveru og góða upplifun í ferðinni.
Þessi ferð sameinar heillandi borgarlíf, stórbrotna sögu, gríska eyjastemningu og glæsilega siglingu um Eyjahaf.
Við hefjum ferðina í Aþenu áður en lagt er af stað í sjö nátta siglingu með Costa Pacifica. Á leiðinni heimsækjum við Istanbúl í Tyrklandi og grísku eyjarnar Mýkonos, Ródos, Santoríni og Krít. Að siglingu lokinni dveljum við í Aþenu í tvær nætur og njótum þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
Í Aþenu gistum við á COCO-MAT Athens BC með morgunverði. Gist er eina nótt fyrir siglinguna og tvær nætur eftir hana.
Aþena • Píreus • Istanbúl • Mýkonos • Ródos • Santoríni • Heraklíon
Flogið er frá Keflavík með Icelandair til Rómar og þaðan áfram með ITA Airways til Aþenu. Á heimleið er flogið sömu leið til baka, frá Aþenu um Róm til Keflavíkur.
Ferðin hefst með flugi Icelandair, FI 930, frá Keflavík kl. 07:50. Áætluð lending í Róm er kl. 14:35. Þaðan er flogið áfram til Aþenu með flugi AZ 718, sem leggur af stað kl. 15:35 og lendir kl. 18:35. Farangurinn er innritaður alla leið til Aþenu. Munið að hafa lyf í handfarangri.
Við komuna til Aþenu sækjum við farangurinn og höldum með rútu á hótelið COCO-MAT Athens BC. Þar gistum við eina nótt með morgunverði áður en siglingin hefst. Eftir ferðalag dagsins gefst tími til að koma sér vel fyrir og njóta fyrsta kvöldsins í Grikklandi.
Dagurinn byrjar rólega í Aþenu áður en haldið er til hafnar í Píreus eftir hádegi. Við göngum um borð í Costa Pacifica og komum okkur fyrir í klefunum. Fram undan er vika af spennandi áfangastöðum, nýjum upplifunum og afslöppun á sjó.
Skipið leggur úr höfn kl. 23:00.
Dagurinn er tilvalinn til að kynnast skipinu og njóta lífsins. Farþegar geta slakað á við sundlaugina og kynnt sér alla þá fjölbreyttu afþreyingu sem er í boði um borð.
Koma kl. 07:00 | Brottför kl. 18:00
Istanbúl heillar með ríkri sögu, stórbrotnum byggingum og iðandi mannlífi. Hér mætast Evrópa og Asía í borg sem hefur um aldir verið á krossgötum menningar og viðskipta.
Við njótum dagsins við að kynnast sögufrægum hverfum, litríkum mörkuðum og tyrkneskri matarmenningu.
Koma kl. 15:00 | Brottför kl. 23:00
Hvítkölkuð hús, þröng stræti og fallegar vindmyllur setja svip á Mýkonos. Gakktu um heillandi bæinn, skoðaðu litlar verslanir og sestu niður á notalegu kaffihúsi. Síðbúin brottför gefur gott tækifæri til að njóta kvöldsins á eyjunni.
Koma kl. 11:00 | Brottför kl. 20:00
Á Ródos fara saman sögulegur glæsileiki og grísk eyjastemning. Gamli bærinn heillar með steinlögðum strætum, borgarmúrum og fallegum torgum. Hér er yndislegt að rölta um, njóta mannlífsins og gæða sér á grískum réttum.
Koma kl. 08:30 | Brottför kl. 20:00
Santoríni er sannkölluð perla Eyjahafsins. Hvít hús og bláar kirkjuhvelfingar rísa yfir dökkum eldfjallaklettum og útsýnið yfir hafið og öskjuna er stórkostlegt.
Njóttu fegurðar eyjarinnar og gefðu þér tíma til að rölta um þröngar steinlagðar götur Thíra. Skoðaðu litlar verslanir og gallerí og fáðu þér grískan hádegisverð eða glas af víni sem þroskast hefur í eldfjallajarðveginum.
Koma kl. 08:00 | Brottför kl. 18:00
Krít tekur á móti okkur með hlýlegri gestrisni og ríkri menningararfleifð. Í Heraklíon má njóta líflegs borgarbrags, skoða verslanir og kynnast bragðgóðri krítverskri matargerð.
Söguáhugafólk getur kynnt sér skoðunarferðir sem varpa ljósi á forna menningu eyjarinnar.
Costa Pacifica leggst að bryggju í Píreus kl. 07:00. Að lokinni siglingunni höldum við á hótelið COCO-MAT Athens BC, þar sem gist verður í tvær nætur.
Í dag förum við í skoðunarferð um Aþenu með Þóru Valsdóttur. Við kynnumst sögu og mannlífi þessarar merku borgar og heimsækjum Akrópólis, þar sem glæsilegar minjar fornaldar bera við himin yfir borginni.
Að heimsókninni á Akrópólis lokinni höldum við í gönguferð um gamla bæinn. Skoðunarferðinni lýkur í hinu heillandi Plaka-hverfi, þar sem þröngar götur, litlar verslanir og notaleg veitingahús skapa einstaka stemningu.
Í dag er frjáls dagur á eigin vegum í Aþenu. Tilvalið er að rölta um hverfin Plaka og Monastiraki, líta í verslanir og njóta góðs matar.
Hér gefst tími til að upplifa borgina á eigin hraða, setjast á notalegt kaffihús og fylgjast með mannlífinu.
Einnig er gaman að heimsækja Syntagmatorg við þinghúsið, þar sem varðmenn standa við gröf óþekkta hermannsins. Þaðan má ganga um Þjóðgarðinn og áfram í Plaka.
Eftir morgunverð á hótelinu er komið að heimferð. Við höldum á flugvöllinn og fljúgum með flugi AZ 719 kl. 12:00 til Rómar. Áætluð lending þar er kl. 13:10.
Frá Róm er flogið áfram með Icelandair, flugi FI 931, kl. 15:45. Áætluð lending á Keflavíkurflugvelli er kl. 18:40.
Um borð í Costa Pacifica sameinast ítalskur sjarmi, fjölbreytt afþreying og ljúft líf á sjó. Tónlist er rauði þráðurinn í hönnun skipsins og skapar líflega stemningu í litríkum og glæsilegum vistarverum.
Á kvöldin má njóta sýninga í leikhúsinu, stíga dans eða setjast niður með góðan drykk og njóta samverunnar.
Dagarnir um borð bjóða upp á notalega blöndu af slökun og skemmtun. Sundlaugar, heitir pottar og sólbaðsaðstaða freista þeirra sem vilja njóta veðurblíðunnar, en heilsulind og líkamsræktaraðstaða gefa færi á að hlúa að líkama og sál.
Fyrir þá sem kjósa meiri hreyfingu eru einnig íþróttaaðstaða og hlaupabraut undir berum himni.
Barir og setustofur eru kjörnir staðir til að hittast eftir viðburðaríkan dag og horfa á hafið með hressingu í hönd.
Það má segja að Costa Pacifica sé áfangastaður út af fyrir sig – staður þar sem hægt er að njóta ferðalagsins og safna dýrmætum nýjum minningum.
Costa býður til sölu skipulagðar skoðunarferðir á öllum viðkomustöðum siglingarinnar. Farþegar geta valið ferðir eftir áhuga og kynnst helstu kennileitum, sögu og menningu hvers staðar.
Ferðirnar eru bókaðar og greiddar sérstaklega hjá Costa, annaðhvort á netinu eða á skrifstofu skoðunarferða um borð.
Allir tímar í dagskránni eru staðartímar. Ferðaáætlun og viðkomutímar eru birt með fyrirvara um breytingar.
Morgunverður, hádegisverður og kvöldverður í aðalmatsal skipsins eða á hlaðborðsveitingastað þess eru innifaldir í siglingunni.
Drykkjapakkar með áfengum eða óáfengum drykkjum eru keyptir sérstaklega á vefnum eða um borð.
Verð frá 739.900 kr.
1.–10. október
Sigldu inn í haustið á Dóná þegar bakkarnir glóa í gylltum litum. 10 daga lúxussigling með öllu inniföldu!
Verð frá 659.900 kr.
Beint flug fram og til baka, ferðataska og handfarangur, gisting, fullt fæði, íslensk fararstjórn og margt fleira.
Lúxussigling með VIVA Cruises með öllu inniföldu.
Njóttu haustlitanna við Dóná í ferð sem sameinar menningu, borgarlíf og fallegt landslag. Flogið er til München og ekið til Passau, þar sem gist er eina nótt áður en lagt er af stað í sjö nátta fljótasiglingu með VIVA Tiara.
Leiðin liggur um Þýskaland, Austurríki, Ungverjaland og Slóvakíu, með viðkomu í Vínarborg, Búdapest og Bratislava, auk minni bæja við fljótið.
Um borð gefst tími til að slaka á, njóta góðra veitinga og virða fyrir sér landslagið sem líður hjá. Ferðinni lýkur með einni nótt í München og frjálsum tíma til að njóta borgarinnar.
Þessi ferð er frábær blanda af menningu, borgarlífi, afslöppun og glæsilegri fljótasiglingu um hjarta Evrópu.
Við hefjum ferðina í Þýskalandi og siglum síðan eftir Dóná um Austurríki, Ungverjaland og Slóvakíu. Á leiðinni heimsækjum við sögufrægar höfuðborgir, heillandi smábæi og falleg vínræktarhéruð.
Fyrstu nóttina gistum við á Hotel König Passau með morgunverði. Hótelið er í hinni sögufrægu borg Passau þar sem árnar Dóná, Inn og Ilz mætast.
Eftir siglinguna gistum við eina nótt á Scandic München Macherei með morgunverði. Það sem eftir er dags í München er frjálst til að njóta borgarinnar.
Passau • Wachau • Krems • Vínarborg • Búdapest • Komárom • Bratislava • Melk • München
Flogið er frá Keflavík með Icelandair til München og ekið þaðan til Passau. Á heimleið er flogið með Icelandair frá München til Keflavíkur.
Samkvæmt upplýsingum um ferðina felur VIVA All-Inclusive meðal annars í sér:
Um borð er setustofa með víðáttumiklu útsýni og sólpallur. Önnur aðstaða, svo sem heitur pottur eða minigolfvöllur, er mismunandi eftir skipum. Einnig er boðið upp á afnot af reiðhjólum í höfnum, eftir framboði.
Dagskrá og viðkomutímar eru til viðmiðunar og geta breyst. Skoðunarferðir í landi eru ekki innifaldar en hægt er að bóka þær og greiða fyrir um borð í skipinu. Allir tímar eru staðartímar.
Flogið er frá Keflavík með Icelandair, flugi FI532, kl. 07:20 og lent í München kl. 13:05. Á flugvellinum bíður rúta sem flytur hópinn til Passau.
Passau stendur við ármót Dónár, Inn og Ilz. Litrík hús, þröngar götur og falleg torg einkenna gamla bæinn og skapa notalega stemningu í upphafi ferðar. Við ármótin má oft greina litamun ánna þriggja. Dóná er bláleit og kemur úr vestri, Inn berst grænleit úr Ölpunum í suðri og Ilz rennur dökkleit úr norðri.
Gist er eina nótt á Hotel König Passau.
Eftir morgunverð gefst tækifæri til að njóta Passau áður en farið er um borð í fljótaskip VIVA Cruises. Farþegar koma sér fyrir í klefum sínum og kynna sér aðstöðuna um borð, þar sem dvalið verður næstu sjö nætur.
Um kvöldið hefst siglingin eftir Dóná. Áætluð brottför frá Passau er kl. 20:00.
Dagurinn hefst á siglingu um Wachau-dalinn, þar sem vínekrur, þorp og sögulegar byggingar prýða hlíðarnar meðfram Dóná. Hér er tilvalið að koma sér vel fyrir um borð og njóta útsýnisins.
Áætlað er að sigla um dalinn kl. 10:00–11:30 og leggjast að bryggju í Krems kl. 12:00. Krems er sögulegur vínræktarbær með fallegum miðbæ og notalegum kaffihúsum. Þar er ánægjulegt að rölta um göturnar og njóta mannlífsins.
Áætluð brottför er kl. 20:00.
Skipið kemur til Vínarborgar kl. 01:00 og fram undan er dagur í glæsilegri höfuðborg Austurríkis. Borgin er þekkt fyrir stórbrotnar byggingar, ríkan tónlistararf og rótgróna kaffihúsamenningu.
Hér má njóta mannlífsins í miðborginni, virða fyrir sér Stefánsdómkirkjuna eða setjast inn á kaffihús og gæða sér á kaffi og kökusneið. Borgin býður upp á fjölmarga möguleika fyrir áhugafólk um sögu, listir og arkitektúr.
Áætluð brottför er kl. 18:00.
Komið er til Búdapest kl. 09:30. Höfuðborg Ungverjalands tekur á móti hópnum með glæsilegum brúm og sögufrægum byggingum við bakka Dónár.
Búda og Pest, borgarhlutarnir sitt hvorum megin fljótsins, hafa ólíkan svip og bjóða upp á fjölbreytta upplifun. Meðal þekktustu kennileita eru þinghúsið, kastalahæðin og Keðjubrúin. Hér er tilvalið að ganga um, njóta útsýnisins og kynnast líflegu borgarlífinu.
Skipið liggur í Búdapest fram á næsta morgun og því gefst einnig kostur á að njóta borgarinnar að kvöldlagi.
Lagt er af stað frá Búdapest kl. 06:00 og siglt til Komárom, þar sem áætluð koma er kl. 14:00.
Komárom stendur við Dóná, á landamærum Ungverjalands og Slóvakíu. Bærinn er þekktur fyrir sögu sína og víggirðingar. Hér gefst tækifæri til að kynnast rólegu bæjarlífi við fljótið, fara í göngutúr og njóta dagsins.
Áætluð brottför er kl. 20:00.
Komið er til Bratislava kl. 06:00. Í höfuðborg Slóvakíu er heillandi gamall bær með steinlögðum götum, fallegum torgum og notalegum veitingastöðum.
Kastalinn gnæfir yfir borginni og er eitt helsta kennileiti hennar. Í miðbænum er ánægjulegt að rölta um, skoða sögulegar byggingar og setjast niður yfir kaffibolla.
Siglt er áfram kl. 14:00 og síðdegis gefst tími til að njóta lífsins um borð.
Skipið leggst að bryggju í Melk kl. 07:30. Bærinn er einkum þekktur fyrir glæsilegt benediktarklaustur sem stendur hátt yfir Dóná og setur sterkan svip á umhverfið.
Í Melk er einnig notalegur miðbær og fallegar gönguleiðir. Hér gefst færi á að njóta síðustu viðkomu siglingarinnar áður en haldið er í átt að Passau kl. 13:30.
Fram undan er síðasta kvöldið um borð, með góðum veitingum og ánægjulegri samveru.
Komið er aftur til Passau kl. 07:30. Eftir morgunverð er farið frá borði og ekið með rútu til München.
Gist er eina nótt á Scandic München Macherei. Það sem eftir er dags er frjálst til að njóta borgarinnar á eigin vegum. Tilvalið er að leggja leið sína á Marienplatz, skoða verslanir í miðborginni eða njóta veitinga á einum af fjölmörgum veitingastöðum borgarinnar.
Rúta sækir hópinn á hótelið og ekur á flugvöllinn í München. Flogið er heim með Icelandair, flugi FI533, kl. 14:05 og lent í Keflavík kl. 16:00.
Verð frá 659.900 kr.
Úrval Útsýn, Hlíðasmára 6, 201 Kópavogi
Skrifstofa opin 12 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)
Þjónustu- og söluver +354 585 4000
Opið 9 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)