Veldu flokk
Veldu ferð fyrir neðan eða skrollaðu niður til að fletta gegnum allar ferðir.
27. nóvember – 2. desember
Töfrandi lúxussigling um Rín og Main. Fjórir jólamarkaðir á sex dögum um borð í MS Viva Tiara.
Verð frá 284.900 kr.
Flug með Icelandair, flugvallaskattar og allur akstur, ein nótt á Frankfurt Marriott og 4 nætur um borð í MS Viva Tiara, íslensk fararstjórn.
Þessi einstaka 6 daga ferð sameinar það besta við evrópska aðventu: glæsilega jólamarkaði í fjórum sögufrægum borgum og afslappandi siglingu um árnar Main og Rín. Við hefjum ferðina í Frankfurt, þar sem jólaandinn ríkir, áður en við stígum um borð í glæsilegt skip Viva Cruises sem verður okkar fljótandi hótel. Á meðan skipið lýður um fegurstu ár Evrópu heimsækjum við Speyer, Strasbourg og Mainz, skoðum tignarlegar dómkirkjur og njótum sannrar jólagleði á heillandi mörkuðum. Þetta er ferð fyrir þau sem vilja njóta lúxus, menningar og ómótstæðilegrar stemningar í góðum félagsskap þegar aðventan er hvað fegurst.
Ingibjörg Lárusdóttir er farastjóri í þessari ferð. Ingibjörg er mikill matgæðingur og elskar anda jólanna. Ingibjörg hefur áður verið farastjóri í aðventuferðum okkar og einnig til Tælands og Grikklands. Lífskúnstner sem gaman er að vera í kringum.
Boðið er upp á tvær tegundir glæsilegra klefa um borð: Ruby-klefa á miðþilfari (Middle Deck) og Diamond-klefa á efra þilfari (Upper Deck).
Einstök aðventusigling með Úrval Útsýn og Viva Cruises. Upplifðu töfra aðventunnar í 6 daga ævintýraferð um hjarta Evrópu. Ferðin hefst 27. nóvember með flugi til Frankfurt, þar sem gist er eina nótt áður en siglingin hefst. Skipið leggur að í þremur heillandi borgum sem allar skarta sínum eigin jólamarkaði. Þetta er einstakt tækifæri til að heimsækja jólamarkaði í fjórum borgum í sömu ferðinni og sigla um tvær af helstu ám álfunnar, Main og Rín.
Á þessari ferð kynnumst við fjórum ólíkum en jafnframt heillandi borgum. Við gistum fyrstu nóttina á Frankfurt Marriott Hotel og skoðum einn elsta jólamarkað Þýskalands í hinu sögufræga Römerberg hverfi. Siglingin heldur svo áfram til Speyer, en dómkirkja borgarinnar er á heimsminjaskrá UNESCO.
Í Strasbourg mætist frönsk og þýsk menning í „Litlu Frakklandi" (Petite France), þar sem bindingshús og skreyttar götur skapa ómótstæðilega stemningu. Að lokum heimsækjum við Mainz, borg Gutenbergs, þar sem rómantískir markaðir prýða torgin við hlið tignarlegu dómkirkjunnar úr rauðum sandsteini. Hver viðkomustaður býður upp á sína einstöku jólatöfra og sögu.
Við hefjum ferðina í Frankfurt, þar sem jólaandinn ríkir. Í Frankfurt er heillandi jólamarkaður í Römerberg-hverfinu sem á sér sögu allt aftur til ársins 1393. Við gistum fyrstu nóttina á Frankfurt Marriott Hotel og njótum stemningarinnar í þessari fjármálaþungu borg.
Skipið leggur að bryggju í Speyer. Eftir morgunverð er hægt að ganga um gamla bæinn eða heimsækja einn notalegasta jólamarkað Þýskalands. Dómkirkja borgarinnar er á heimsminjaskrá UNESCO og er ein stærsta rómversk dómkirkja heims.
Strasbourg er einstaklega gönguvæn borg þar sem frönsk og þýsk menning mætast á áhugaverðan hátt. Borgin státar af ríkri sögu og glæsilegu yfirbragði. Hún er staðsett í Alsace-héraði og er þekkt fyrir gotneska dómkirkju sína og hinu sögulega Petite France-hverfi, sem er á heimsminjaskrá UNESCO.
Strasbourg er heimsfræg fyrir jólamarkaði sína og ljósadýrðin á kvöldin er einstök og kemur öllum í sannkallað jólaþap. Á hverju ári flykkjast nær tvær milljónir gesta til „höfuðborgar jólaanna" til að upplifa það besta sem aðventan hefur upp á að bjóða. Yfir 300 sölubásar eru jafnan settir upp á torgum í Grande-Île hverfinu.
Frá 16. öld hafa jólamarkaðirnir umbreytt borginni í sannkallað undraland. Með yfir fjögurra alda hefð er markaðurinn sá elsti í Frakklandi og meðal þeirra elstu í Evrópu. Markaðurinn „Christkindelsmärik" á Broglie-torgi, við rætur óperuhússins, er sérstaklega heillandi.
Matarúrvalið á mörkuðunum er fjölbreytt og stemningin er talin ein sú líflegasta sem völ er á. Hátíðarandinn svífur yfir fallega skreyttum húsum og í miðri ljósadýrðinni rís dómkirkjan í allri sinni dýrð og skapar ógleymanlega stemningu.
Mainz er fræg fyrir falleg miðaldartorg sín, gömul timburhús og hinn sérstaka gosbrunn úr rauðum sandsteini sem prýðir miðborgina. Þessi einkennandi rauði steinn er áberandi í mörgum af glæsilegustu byggingum borgarinnar. Í Mainz er einnig að finna hið fræga Gutenberg-safn, helgað sögu prentlistarinnar. Borgin skartar einstökum jólamarkaði sem staðsettur er við hlið dómkirkjunnar.
Frankfurt Marriott Hotel er virkilega notalegt og vandað 5 stjörnu hótel sem staðsett er í hjarta Frankfurt. Hótelið býður upp á frábært morgunverðarhlaðborð sem gefur góðan kraft inn í daginn. Herbergin eru glæsileg og klassískt innréttuð með áherslu á þægindi, góð rúm og ríka hljóðeinangrun sem tryggir fullkomna hvíld.
MS Viva Tiara er virkilega glæsilegt og vandað 4 stjörnu skemmtiferðaskip sem siglir á ám Main og Rín. Um borð býðst fullt fæði og „All Inclusive" sem innifelur morgun-, hádegis- og kvöldverð ásamt léttu snarli yfir daginn. Allir drykkir eru innifaldir: sérvalið áfengi, óáfengir drykkir, hágeða kaffi og te. Mínibar/ískápur í klefa er áfylltur alla daga með bjór, gosi og vatni. Herbergin eru glæsileg og vel innréttuð með áherslu á þægindi. Gæða snyrtivörur frá Rituals í klefa og ókeypis þráðlaust net (Wi-Fi).
Flogið er með Icelandair (FI520) kl. 07:20 og lent í Frankfurt kl. 12:05. Rúta bíður okkar á flugvellinum og flytur hópinn á hótel. Það er tilvalið að nota daginn til að skoða borgina og njóta jólaandans. Í Frankfurt er heillandi jólamarkaður í Römerberg-hverfinu sem á sér sögu allt aftur til ársins 1393.
Rúta sækir hópinn á hótelið um hádegi og keyrir okkur að skipi Viva Cruises, MS Tiara. Skipið leggur úr höfn kl. 17:00 og við njótum okkar fyrsta kvöldverðar um borð á meðan við siglum af stað.
Skipið leggur að bryggju í Speyer kl. 07:30. Eftir morgunverð er hægt að ganga um gamla bæinn eða heimsækja einn notalegasta jólamarkað Þýskalands sem opnar kl. 11:00. Skipið siglir aftur kl. 14:00. Hádegis- og kvöldverður borinn fram um borð.
Skipið leggur að bryggju í Strasbourg kl. 02:00. Eftir morgunverð eða hádegisverð um borð gefst kostur á að ganga um þessa heillandi borg og skoða einn af elstu jólamörkuðum Evrópu. Kvöldverður er borinn fram í skipinu áður en haldið er úr höfn kl. 22:30.
Skipið leggur að bryggju í Mainz klukkan 12:00. Borgin er fræg fyrir falleg miðaldartorg sín, gömul timburhús og hinn sérstaka gosbrunn úr rauðum sandsteini sem prýðir miðborgina. Í Mainz er einnig að finna hið fræga Gutenberg-safn, helgað sögu prentlistarinnar. Borgin skartar einstökum jólamarkaði sem staðsettur er við hlið dómkirkjunnar. Eftir innihaldsríkan dag njótum við kvöldverðar um borð í skipinu. Skipið siglir af stað áleiðis til Frankfurt klukkan 01:30 (aðfaranótt 2. desember).
Skipið leggur að höfn í Frankfurt kl. 07:00. Eftir morgunverð um borð flytur rúta hópinn út á flugvöll. Flogið er heim með Icelandair (FI521) kl. 13:05 og lent í Keflavík kl. 15:55 eftir ógleymanlega ferð.
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 284.900 kr.
23. febrúar – 9. mars
Ógleymanleg sigling um Suður-Ameríku þar sem stórborgir, suðrænar strendur og einstök brasilísk lífsgleði mætast.
Verð frá 839.000 kr.
Flug fram og til baka ásamt flugvallagjöldum, sköttum, ferðatösku og handfarangri, gisting með morgunverði í Buenos Aires, sigling með Costa Serena í völdum klefa með fullu fæði, akstur og skoðunarferð samkvæmt dagskrá, íslensk fararstjórn.
Komdu með í einstaka ferð til Suður-Ameríku þar sem við sameinum dvöl í heillandi Buenos Aires og glæsilega siglingu með Costa Serena, með viðkomu í Úrúgvæ og á nokkrum af fegurstu stöðum Brasilíu.
Ferðin hefst í Buenos Aires, hinni litríku og ástríðufullu höfuðborg Argentínu. Þar fáum við tíma til að kynnast borginni áður en haldið er um borð í Costa Serena og siglt af stað í sannkallað suður-amerískt ævintýri.

Á siglingunni heimsækjum við Montevideo í Úrúgvæ og siglum síðan meðfram stórbrotinni strandlengju Brasilíu. Þar bíða okkar meðal annars Balneário Camboriú, Angra dos Reis, Rio de Janeiro og Ilhabela, staðir sem bjóða upp á allt frá heimsfrægum kennileitum og suðrænum ströndum til grænna eyja og brasilískrar lífsgleði.
Á milli áfangastaða njótum við lífsins um borð, þar sem ferðalagið sjálft verður hluti af upplifuninni. Ferðinni lýkur þar sem hún hófst, í Buenos Aires, áður en flogið er aftur heim til Íslands.

Ingibjörg Lárusdóttir hóf störf sem fararstjóri hjá Sigurði Magnússyni í Grikklandi ung að árum og talar grísku reiprennandi.
Hún hefur starfað í ferðaþjónustu allar götur síðan, samhliða störfum sínum sem lögfræðingur. Ingibjörg hefur verið fararstjóri fyrir Úrval Útsýn í ferðum til Taílands, Ítalíu, Þýskalands, Frakklands og Grikklands, auk þess að hafa stýrt siglingum víða um heim.
Ingibjörg hefur einstaka nærveru og leysir úr öllum málum eins og hendi sé veifað.
Þessi ferð er frábær blanda af borgarlífi, menningu, afslöppun, suðrænum áfangastöðum og glæsilegri siglingu.



Suður-Ameríka eins og hún gerist best, fjölbreytt, litrík og ógleymanleg.
Í Buenos Aires gistum við á Carles Hotel Buenos Aires, fjögurra stjörnu hóteli í Recoleta-hverfinu. Gist er í Executive-herbergjum með morgunverði. Hótelið býður meðal annars upp á ókeypis Wi-Fi, líkamsræktaraðstöðu og sólarhringsmóttöku.
Fyrir siglinguna gistum við þrjár nætur á hótelinu, frá 24. til 27. febrúar. Eftir að siglingunni lýkur gistum við þar aftur eina nótt, frá 8. til 9. mars.
Innifalið í dvölinni er einkaflutningur milli Ezeiza-flugvallar, hótels og hafnar, móttaka tvítyngds staðarleiðsögumanns við komu og hálfs dags einkaskoðunarferð um Buenos Aires.
Buenos Aires • Montevideo • Balneário Camboriú • Angra dos Reis • Rio de Janeiro • Ilhabela
Flogið er frá Keflavík með Icelandair til Amsterdam og þaðan áfram með KLM til Buenos Aires. Á heimleið er flogið með KLM frá Buenos Aires til Amsterdam og áfram með Icelandair til Keflavíkur.
Flogið frá Keflavík með Icelandair til Amsterdam kl. 07:40. Þaðan höldum við áfram með KLM yfir Atlantshafið til Buenos Aires í Argentínu.
Fram undan er spennandi ferð um þrjú lönd Suður-Ameríku, Argentínu, Úrúgvæ og Brasilíu.
Lent í Buenos Aires kl. 07:45.
Við komu tekur tvítyngdur staðarleiðsögumaður á móti hópnum og einkabifreið flytur okkur frá Ezeiza-flugvelli á Carles Hotel Buenos Aires. Gist er í Executive-herbergjum með morgunverði fram að siglingu 27. febrúar.
Buenos Aires er ein mest heillandi stórborg Suður-Ameríku, glæsileg, lífleg og full af karakter. Hér blandast evrópskur arkitektúr, suður-amerísk ástríða, tangó, frábær matarmenning og iðandi mannlíf.
Við komuna gefst tími til að koma sér fyrir og byrja að njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða.
Í dag förum við í hálfs dags einkaferð um Buenos Aires með tvítyngdum staðarleiðsögumanni og akstri.
Við heimsækjum meðal annars Plaza de Mayo, San Telmo, La Boca, Puerto Madero, Teatro Colón, Recoleta-hverfið, bókabúðina El Ateneo Grand Splendid og Floralis Generica.
Einnig er komið við við lagadeild Háskólans í Buenos Aires og farið í Recoleta-kirkjugarðinn. Aðgangseyrir í kirkjugarðinn er innifalinn.

Dagurinn er frjáls og kjörið að njóta Buenos Aires á eigin hraða.
Rölta má um lífleg hverfi borgarinnar, setjast niður á kaffihús, skoða verslanir, njóta argentínskrar matargerðar eða einfaldlega drekka í sig stemninguna.
Nú hefst nýr kafli ferðalagsins.
Við förum um borð í Costa Serena í Buenos Aires og komum okkur fyrir. Fram undan eru spennandi dagar á Atlantshafinu með viðkomu í Úrúgvæ og Brasilíu.
Einkabifreið flytur hópinn frá Carles Hotel að höfninni í Buenos Aires.
Nú er bara að koma sér vel fyrir, kanna skipið og njóta þess að vera komin um borð.
Fyrsti viðkomustaður siglingarinnar er Montevideo, höfuðborg Úrúgvæ.
Borgin stendur við Río de la Plata og sameinar fallega gamla borgarhluta, torg, markaði og afslappað suður-amerískt borgarlíf. Hér gefst tækifæri til að upplifa annan takt en í stórborginni Buenos Aires og kynnast þessari skemmtilegu höfuðborg.
Heill dagur á sjó þar sem ekkert liggur á.
Nú gefst tími til að njóta alls þess sem skipið hefur upp á að bjóða, slaka á, njóta góðs matar, sólar og skemmtunar eða einfaldlega horfa út yfir Atlantshafið.
Brasilía tekur á móti okkur!
Við komum til Balneário Camboriú, vinsæls strandáfangastaðar þar sem háhýsi, breiðar sandstrendur og lífleg brasilísk stemning skapa skemmtilega blöndu.
Hér fáum við okkar fyrstu alvöru kynni af brasilísku strandlífi.

Í dag bíður ein af náttúruperlum ferðarinnar, Angra dos Reis.
Svæðið er þekkt fyrir grænar eyjar, tærbláan sjó og stórbrotið landslag. Hér mætast gróðursæl fjöll og Atlantshafið og útkoman er sannkölluð suðræn paradís.

Ógleymanlegur dagur þegar við komum til hinnar stórbrotnu Rio de Janeiro.
Fáar borgir eiga jafn auðþekkjanlega ásýnd. Græn fjöll rísa upp úr borginni, heimsfrægar strendur liggja meðfram Atlantshafinu og yfir öllu vakir Kriststyttan fræga.
Copacabana, Ipanema, Sykur-fjallið og lífsgleði heimamanna hafa gert Rio að einni þekktustu borg heims.
Þetta er sannarlega einn af hápunktum ferðarinnar.

Siglt er til Ilhabela, eða „fallegu eyjunnar“, eins og nafnið gefur til kynna.
Gróskumikill gróður, fallegar strendur og afslappað eyjalíf einkenna þennan heillandi áfangastað. Hér er kjörið að njóta síðasta brasilíska viðkomustaðarins áður en stefnan er tekin aftur í átt að Argentínu.

Tveir notalegir dagar á sjó.
Nú gefst góður tími til að slaka á eftir viðburðaríka daga í Brasilíu og njóta skipsins til fulls.
Góður matur, afslöppun og útsýni yfir Atlantshafið skapa fullkominn endi á siglingunni áður en við komum aftur til Buenos Aires.
Skipið kemur til Buenos Aires að morgni.
Einkabifreið flytur hópinn frá höfninni á Carles Hotel Buenos Aires. Gist er eina nótt í Executive-herbergjum með morgunverði.
Við kveðjum Costa Serena eftir ævintýralega siglingu og eigum aftur tíma í þessari heillandi borg.
Eftir daga á sjó og við brasilísku ströndina er gaman að fá aftur að njóta argentínsku höfuðborgarinnar áður en heimferðin hefst.
Við njótum síðustu stundanna í Buenos Aires áður en einkabifreið flytur hópinn frá hótelinu til Ezeiza-flugvallar.
Klukkan 17:00 er flogið með KLM frá Buenos Aires til Amsterdam.
Við kveðjum Suður-Ameríku með ferðatöskuna fulla af minningum eftir ótrúlega fjölbreytta ferð.
Frá Amsterdam er flogið áfram með Icelandair til Íslands.
Lent er á Keflavíkurflugvelli kl. 15:20 og þar lýkur ævintýrinu eftir ferð þar sem við höfum upplifað þrjú lönd, heimsborgir, suðrænar strendur og einstaka siglingu meðfram ströndum Suður-Ameríku.
Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net.
Verð frá 839.000 kr.
18.–28. mars
Töfrandi páskasigling frá Róm. Kristín A. Árnadóttir tryggir stórbrotna upplifun.
Verð frá 559.900 kr.
Beint flug með Icelandair til og frá Róm, ferðataska og handfarangur, 3 nætur á 4 stjörnu hóteli í Róm með morgunverði, 7 nætur um borð í Costa Toscana með fullu fæði, allur akstur samkvæmt dagskrá, íslensk fararstjórn.
Komdu með í rómaða Miðjarðarhafssiglingu sem sameinar menningu, sögu, stórbrotna áfangastaði og þægilega dvöl um borð í glæsilegu skemmtiferðaskipinu Costa Toscana. Skipið er sannkallaður heimur út af fyrir sig, þar sem fjölbreytt afþreying, veitingastaðir og notaleg stemning tryggja að engum leiðist á meðan siglingunni stendur.
Ferðin hefst og lýkur í Róm, þar sem gist er bæði fyrir og eftir siglingu. Þar gefst kostur á að kynnast hinni fornu borg með skipulögðum skoðunarferðum, meðal annars um hina gömlu Róm og með heimsókn í Vatíkanið, auk þess sem frjáls tími er til að njóta borgarinnar á eigin forsendum.
Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking.
Flogið með Icelandair FI930 klukkan 08:20 og lent í Róm 14:00. Rúta nær í hópinn og keyrir á hótel.
Að morgunverði loknum getur fólk tekið því rólega þar til komið er að því að skrá sig út af hótelinu. Rúta flytur hópinn frá hótelinu að Civitavecchia-höfn þar sem gengið verður um borð í hið glæsilega skip Costa Toscana. Siglt verður af stað klukkan 19:00.
M, H, K
Kl. 08:30 verður lagt að höfn í Savona sem staðsett er í Liguria héraðinu á Ítalíu. Liguria héraðið er þekkt sem ítalska rívíeran vegna fjölmargra strandbæja sem þekja strandlengjuna beggja vegna við Genoa sem er höfuðborg héraðsins. Savona er sannur gimsteinn hvað varðar list, sögu og menningu en borgin hefur sannarlega upplifað tímana tvenna. Einn frægasti íbúi Savona var Kristófer Kólumbus en hægt er að skoða safn sem er í enduruppbyggingu af húsinu sem hann bjó í. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð hjá Costa Cruise en einnig er hægt að skoða borgina á eigin vegum.
M, H, K
Komið er til Marseille kl. 09:00 að morgni og verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að skoða borgina á eigin vegum. Munið bara að vera komin tímalega til baka um borð þegar skipið fer úr höfn kl. 18.
Marseille er elsta borg Frakklands, stofnuð af Grikkjum árið 600 f.Kr. Frábær staðsetning borgarinnar við Miðjarðarhafið hefur frá upphafi stofnunar hennar gert hana að vinsælum áningarstað og má þar sjá greinileg áhrif frá jafnvel mjög fjarlægum menningarheimum. Marseille, stundum kölluð "Napólí Frakklands", er litrík og glöðleg borg en í henni er mikil matarmenning og margt áhugavert að sjá.
M, H, K
Lagt að höfn í Barcelona kl. 09:00. Hr er nóg að gera og því tilvalið að taka daginn snemma.
Í borginni er bæði Picasso safnið og nýstárlegt samtímalistasafnið Macba. Ennfremur eru margar litríkar og stórmerkilegar byggingar eftir Antoní Gaudí sem og dómkirkjan fræga Sagrada Familia sem enn er ekki búið að klára, en bygging hennar hófst árið 1882. Hvort heldur sem valið er að rölta um þröngar götur í Barrio Gothico, þræða tapasbari og rölta um Römluna, versla í tískuverslunum eða kíkja á listasafn, þá er Barcelona borgin fyrir þetta allt saman og miklu meira! Eins og áður þá verður hægt að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borð í skipinu.
Lagt úr höfn kl. 19:00 stundvíslega.
M, H, K
Velkomin til Palma de Mallorca – einnar fallegustu hafnar Miðjarðarhafsins. Skipið leggst að bryggju kl. 07:30 og siglir aftur kl. 17:00, sem gefur góðan tíma til að njóta borgarinnar.
Palma býður upp á einstaka blöndu af sögu, menningu, verslun og notalegu borgarlífi. Frá höfninni er auðvelt að komast í miðbæinn með leigubíl, skutlu eða almenningssamgöngum. Byrjið daginn á heimsókn að glæsilegri dómkirkjunni La Seu, einu þekktasta kennileiti eyjarinnar. Þaðan er tilvalið að rölta um þröngar steinlagðar götur gamla bæjarins, skoða falleg torg, sögulegar byggingar og notaleg kaffihús.
M, H, K
Komið er til Palermo kl. 8:00 að morgni og er hægt að velja um fjölda skoðunarferða til kaups hjá Costa Cruise. Höfuðborg Sikileyjar hefur verið menningarlegur suðupottur síðan Föníkíumenn og Grikkir börðust um hana á 5. og 6. öld f.Kr. Sikiley, einu sinne rómversk, svo býsönsk, arabísk, normönsk og að lokum ítölsk, sameinaðist meginlandi Ítalíu loks árið 1861. Dásamlegir markaðir, fögur torg, aldagamlar kirkjur ásamt stórbrotinni sögu og menningu! Hér er margt að skoða og sjá. Hægt er að kaupa skipulagðar skoðunarferðir um borg hjá Costa Cruise eða kanna á eigin vegum.
M, H, K
Komið verður að Civitavecchia höfninni í Róm kl. 08:00 að morgni. Hópurinn yfirgefur skipið og rúta flytur okkur á 4 stjörnu hótel. Frjáls tími það sem eftir er af deginum.
M, H
Frjáls dagur í Rómaborg. Valfrjáls skoðunarferð í Vatíkanið. Keypt aukalega í bókunarferli.
M
Um hádegisbil sækir rúta hópinn og flytur út á flugvöll.
Brottför kl. 15:45 með Icelandair flugi FI930, lending í Keflavík kl. 18:40 að staðartíma.
M
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 559.900 kr.
12.–28. maí
17 daga lúxusferð um Dóná með öllu inniföldu. Átta lönd, höfuðborgir og smábæir við fljótið.
Verð frá 949.900 kr.
Flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, gisting fyrstu nótt í Passau, allur akstur, sigling með VIVA Cruises í völdum klefaflokki, fullt fæði um borð ásamt drykkjum, þjórfé og minibar.
Komdu með í ógleymanlega siglingu með VIVA Cruises þar sem þú ferðast um hjarta Evrópu eftir hinni tignarlegu Dóná. Á þessari einstöku ferð kynnistu glæsilegum höfuðborgum, heillandi smábæjum, ríkulegri menningu og stórbrotinni náttúru á leið um átta lönd.
Ferðin hefst í Passau í Þýskalandi, hinni fallegu „borg þriggja fljóta“, þar sem stigið er um borð í glæsilegt skip VIVA Cruises. Fyrsti áfangastaðurinn er Vín í Austurríki, borg tónlistar, lista og keisaralegrar sögu. Þar bíða glæsilegar hallir, fallegar götur og notaleg kaffihús sem skapa einstaka stemningu.
Siglt til Búdapestar, hinnar glæsilegu höfuðborgar Ungverjalands. Borgin, sem Dóná skiptir í Búda og Pest, heillar gesti með stórfenglegri byggingarlist, sögulegum minjum og líflegu mannlífi.
Siglingin heldur áfram suður eftir Dóná til Króatíu með viðkomu í Batina áður en komið er til Serbíu. Í Novi Sad gefst tækifæri til að skoða hið glæsilega Petrovaradin-virki og njóta notalegs andrúmslofts gamla bæjarins. Í Belgrad, þar sem Dóná og Sava mætast, tekur á móti þér kraftmikil borg með langa og áhugaverða sögu, fjölbreyttri menningu og líflegu mannlífi.
Næst liggur leiðin til Búlgaríu með viðkomu í Ruse, sem gjarnan er kölluð „Litla Vín“, og síðan til Vidin þar sem hið glæsilega Baba Vida-virki stendur vörð við árbakkann og minnir á miðaldasögu svæðisins.
Frá Búlgaríu er haldið til Rúmeníu með viðkomu í Fetești og Hârșova, þar sem landslagið tekur á sig nýja mynd og saga Dónár verður enn fjölbreyttari í átt að Svarta hafinu.
Einn af hápunktum ferðarinnar er siglingin um Iron Gates (Járnhliðin), hið stórbrotna gljúfrasvæði á landamærum Serbíu og Rúmeníu. Þar þrengir áin sér á milli háreistra kletta og stórfenglegt útsýni blasir við í hverri beygju. Þessi kafli Dónár er talinn einn fallegasti hluti árinnar og skilur eftir ógleymanlegar minningar.
Á þessari einstöku ferð færð þú tækifæri til að upplifa ólíka menningu, stórbrotna náttúru og sögufræga staði á þægilegan hátt um borð í glæsilegu skipi VIVA Cruises. Slökun, fyrsta flokks þjónusta, góður matur með öllu inniföldu ásamt áfengum og óáfengum drykkjum, þjórféi og minibar sem fyllt er á tvisvar á dag og spennandi áfangastaðir gera þessa siglingu að sannkallaðri draumaferð fyrir alla sem vilja kynnast Evrópu frá nýju sjónarhorni. Í skipinu eru 3 veitingastaðir. Morgunmatur og margrétta hádegisverður og kvöldverður innifalin allan tímann. Hægt er að skoða borgir á eigin vegum eða kaupa skoðunarferðir hjá VIVA um borð. Skipið er fyrsta flokks og hægt er að fara í spa eða heita pottinn á þakinu eða liggja á sólardekkinu og slaka á og láta þjóna sér með drykki eða létt snarl.
Flogið með Icelandair til Munchen með FI532 klukkan 07:20 og lent 13:05. Rúta sækir hópinn og keyrir til Passau þar sem gist er á hóteli um nóttina.
Eftir morgunverð er hópurinn keyrður um borð í VIVA TWO lúxus fljótaskip VIVA Cruises. Skipið siglir klukkan 16:30.
Komið er til Vínarborgar klukkan 13:00 og siglt aftur klukkan 19:00.
Komið til Solt í Ungverjalandi klukkan 14:00 og siglt aftur 14:30.
Komið til Kalocsa í Ungverjalandi 17:30 og siglt þaðan 18:00.
Komið til Batina í Ungverjalandi 23:00 og siglt þaðan 23:30.
Komið til Novi Sad í Serbíu klukkan 08:30 og siglt aftur 09:30.
Komið til Belgrad höfuðborgar Serbíu klukkan 13:30 og siglt aftur 23:30.
Dagur til að njóta og slaka á.
Skipið kemur til Ruse í Búlgaríu klukkan 09:00 og siglir aftur klukkan 10:00.
Skipið kemur til Fetești í Rúmeníu 18:30 og siglir aftur klukkan 19:30.
Skipið kemur til Hârșova í Rúmeníu klukkan 23:30.
Komið til Fetești í Rúmeníu klukkan 05:00 og siglt aftur klukkan 14:00.
Skipið kemur til Ruse í Búlgaríu klukkan 07:00 og siglir aftur klukkan 13:00.
Komið til Svishtov í Búlgaríu klukkan 17:00 og siglt aftur 17:30.
Komið til Vidin í Búlgaríu klukkan 08:30 og siglt aftur 14:00.
Skipið kemur til Donji Milanovac í austur Serbíu klukkan 06:30 og siglir aftur klukkan 09:00.
Komið til Golubac í Serbíu klukkan 12:30 og siglt aftur 13:30.
Skipið kemur til Vukovar í austur Króatíu klukkan 09:00 og siglir aftur 12:30.
Komið til Búdapest í Ungverjalandi klukkan 11:00 og siglt þaðan klukkan 19:00.
Skipið kemur til Bratislava í Slóvakíu klukkan 13:00 og siglt aftur klukkan 17:00.
Skipið kemur til Melk í Austurríki 10:30 og siglir aftur klukkan 14:00.
Skipið kemur til Passau klukkan 08:00. Eftir morgunverð er síðan hópurinn keyrður til Munchen þar sem flogið er heim með Icelandair FI 533 sem fer í loftið klukkan 14:05 og lendir í Keflavík klukkan 16:00.
Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net
Verð frá 949.900 kr.
Úrval Útsýn, Hlíðasmára 6, 201 Kópavogi
Skrifstofa opin 12 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)
Þjónustu- og söluver +354 585 4000
Opið 9 – 16 mán. - fim. (15 á fös.)